„Jón Þorkelsson (Grímshjalli)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Jón Þorkelsson''' tómthúsmaður í Grímshjalli, vinnumaður á Vesturhúsum, fæddist 18. september 1826 í Skarðshjáleigu í Mýrdal og lést 10. sept...) |
m (Verndaði „Jón Þorkelsson (Grímshjalli)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 31. mars 2014 kl. 21:35
Jón Þorkelsson tómthúsmaður í Grímshjalli, vinnumaður á Vesturhúsum, fæddist 18. september 1826 í Skarðshjáleigu í Mýrdal og lést 10. september 1864.
Foreldrar hans voru Þorkell Jónsson bóndi í Skarðshjáleigu, f. 1787 á Norður-Götum í Mýrdal, d. 12. desember 1839 í Vík þar, og kona hans Gyðríður Sveinsdóttir húsfreyja, f. 1785, d. 3. janúar 1859 á Vesturhúsum.
Systkini Jóns í Eyjum voru:
1. Guðmundur Þorkelsson vinnumaður, f. 2. mars 1828, d. 7. mars 1859.
Hálfsystkini Jóns í Eyjum, (sammædd), voru:
2. Sveinn Hjaltason bóndi og lóðs á Vesturhúsum, f. 3. desember 1815, d. 23. júni 1879.
3. Sigríður Hjaltadóttir vinnukona í Nýjabæ, f. 9. ágúst 1818.
4. Filippus Hjaltason vinnumaður í Nöjsomhed, f. 12. maí 1820.
5. Eyjólfur Hjaltason á Löndum, sjávarbóndi 1870, bókbindari í Kornhól, f. 19. desember 1821.
Jón var með foreldrum sínum í Skarðshjáleigu til ársins 1836/7, niðursetningur og síðan vinnumaður á Dyrhólum í Mýrdal 1837-1851.
Hann fluttist til Eyja 1851 og þá að Vesturhúsum, en þar bjó Sveinn bróðir hans.
Þar var hann vinnumaður 1855 ásamt Guðmundi bróður sínum.
Jón var tómthúsmaður í Grímshjalli 1860, kvæntur Sesselju húsfreyju.
Hann lést 1864.
Kona Jóns, (5. nóvember 1859), var Sesselja Arnoddsdóttir húsfreyja, f. 28. febrúar 1827, d. 22. júní 1888.
Barn þeirra hér:
1. Guðjón Jónsson, síðar bóndi í Dölum, f. 4. ágúst 1862, d. 29. júní 1900.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.