„Ragnhildur Þorsteinsdóttir (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Ragnhildur Þorsteinsdóttir (Vesturhúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 6: Lína 6:
Í Eyjum bjuggu þau á [[Vesturhús]]um og [[Lönd]]um.

Í Eyjum bjuggu þau á [[Vesturhús]]um og [[Lönd]]um.

Þar tók Bjarni þátt í [[Miðhúsaránið|Miðhúsaráninu]] og var dæmdur í fangelsi í Reykjavík 1791.

Þar tók Bjarni þátt í [[Miðhúsaránið|Miðhúsaráninu]] og var dæmdur í fangelsi í Reykjavík 1791.

Meðan á fangelsisdvölinni stóð eignaðist Ragnhildur tvíbura með [[Árni Hákonarson (Gerði)|Árna Hákonarsyni]] bónda og sjómanni í Gerði. Þetta mun það  hafa stuðlað að skilnaði þeirra Bjarna.

Meðan á fangelsisdvölinni stóð eignaðist Ragnhildur tvíbura með [[Árni Hákonarson (Stóra-Gerði)|Árna Hákonarsyni]] bónda og sjómanni í Gerði. Þetta mun það  hafa stuðlað að skilnaði þeirra Bjarna.

Ragnhildur fluttist að nýju til V-Skaftafellssýslu.

Ragnhildur fluttist að nýju til V-Skaftafellssýslu.

Hún var á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi 1792-1796, á Hnausum þar 1797-1798, í Efri-Ey þar 1798-1799, á Söndum þar 1797-1798, í Efri-Ey 1798-1799, á Söndum 1799-1800, vinnukona á Syðri-Steinsmýri 1800-1802, þar sem hún eignaðist Sigríði með Eyjólfi bónda þar. Hún var vinnukona í Gamlabæ (á Syðri-Steinsmýri) 1802-1803, á Ytri-Lyngum í Meðallandi 1803-1805.

Lína 18: Lína 18:
4.  Andvana fæddur sonur í október 1789.

4.  Andvana fæddur sonur í október 1789.

II. Barnsfaðir Ragnhildar var [[Árni Hákonarson (Gerði)|Árni Hákonarson]] bóndi og sjómaður í [[Gerði-stóra|Stóra-Gerði]], f. 1741, drukknaði 16. febrúar 1793. Bjarni  maður hennar var þá fangi í Reykjavík.

II. Barnsfaðir Ragnhildar var [[Árni Hákonarson (Stóra-Gerði)|Árni Hákonarson]] bóndi og sjómaður í [[Gerði-stóra|Stóra-Gerði]], f. 1741, drukknaði 16. febrúar 1793. Bjarni  maður hennar var þá fangi í Reykjavík.

Börn þeirra voru

Börn þeirra voru

5. Jón Árnason, f. í maí 1792, tvíburi, d. 3. maí 1792 úr ginklofa, lifði 3 daga.

5. Jón Árnason, f. í maí 1792, tvíburi, d. 3. maí 1792 úr ginklofa, lifði 3 daga.

Útgáfa síðunnar 13. mars 2014 kl. 17:02

Ragnhildur Þorsteinsdóttir húsfreyja á Vesturhúsum og Löndum, en síðar í V-Skaftafellssýslu, fæddist 1760 á Hvoli í Mýrdal og lést 24. júlí 1843 á Langholti í Meðallandi.
Foreldrar hennar voru sr. Þorsteinn Jónsson, síðar prestur í Mjóafirði eystra og á Dvergasteini í Seyðisfirði, f. 1737, d. 10. ágúst 1800 og barnsmóðir hans Steinunni Runólfsdóttur húsfreyja á Leiðvelli í Meðallandi, en þá ekkja á Hvoli í Mýrdal, f. 1723.

Ragnhildur var í fyrstu skráð Steinunnardóttir, þar sem faðir hennar sór fyrir hana, en hún var síðar kennd við föður sinn.
Hún var húsfreyja í Jórvík í Álftaveri 1784 með Bjarna eiginmanni sínum. Þau misstu frumburð sinn líklega skömmu eftir fæðingu. Þau flúðu til Eyja með Katrínu á fyrsta ári og Steinunni móður Ragnhildar. Katrín dó á leiðinni.
Í Eyjum bjuggu þau á Vesturhúsum og Löndum.
Þar tók Bjarni þátt í Miðhúsaráninu og var dæmdur í fangelsi í Reykjavík 1791.
Meðan á fangelsisdvölinni stóð eignaðist Ragnhildur tvíbura með Árna Hákonarsyni bónda og sjómanni í Gerði. Þetta mun það hafa stuðlað að skilnaði þeirra Bjarna.
Ragnhildur fluttist að nýju til V-Skaftafellssýslu.
Hún var á Syðri-Steinsmýri í Meðallandi 1792-1796, á Hnausum þar 1797-1798, í Efri-Ey þar 1798-1799, á Söndum þar 1797-1798, í Efri-Ey 1798-1799, á Söndum 1799-1800, vinnukona á Syðri-Steinsmýri 1800-1802, þar sem hún eignaðist Sigríði með Eyjólfi bónda þar. Hún var vinnukona í Gamlabæ (á Syðri-Steinsmýri) 1802-1803, á Ytri-Lyngum í Meðallandi 1803-1805.
Hún var húsfreyja á Ytri-Lyngum í Meðallandi 1805-1816, var með Guðmundi síðari manni sínum á Slýjum þar 1816-1835, á Syðri- Steinsmýri þar 1835-1839, á Oddum þar 1839-1843, í Langholti þar 1843-dd.
Ragnhildur var tvígift, en átti börn með 3 mönnum.
I. Fyrri eiginmaður hennar (skildu) var Bjarni Sigvaldason bóndi, f. um 1757.
Börn þeirra voru:
1. Barn, f. í V-Skaft., dó ungt.
2. Katrín Bjarnadóttir, f. 1784, lést á flóttanum undan Skaftáreldum.
3. Andvana fædd stúlka 26. apríl 1788.
4. Andvana fæddur sonur í október 1789.

II. Barnsfaðir Ragnhildar var Árni Hákonarson bóndi og sjómaður í Stóra-Gerði, f. 1741, drukknaði 16. febrúar 1793. Bjarni maður hennar var þá fangi í Reykjavík.
Börn þeirra voru
5. Jón Árnason, f. í maí 1792, tvíburi, d. 3. maí 1792 úr ginklofa, lifði 3 daga.
6. Ingibjörg Árnadóttir, f. í maí 1792, tvíburi, d.3. maí 1792 úr ginklofa, lifði 3 daga.

III. Barnsfaðir hennar var Eyjólfur Jónsson bóndi á Syðri-Steinsnmýri í Meðallandi, f. 1768, d. 1823.
Barn þeirra var
7. Sigríður Eyjólfsdóttir húsfreyja, f. 30. mars 1801 á Syðri-Steinsmýri, d. 22. desember 1865 í Háu-Kotey í Meðallandi. Hún var þrígift austur þar.

IV. Síðari eiginmaður Ragnhildar, (1806), var Guðmundur Ólafsson bóndi á Ytri-Lyngum.
Þau voru barnlaus.

Heimildir