„Guðmundur Eiríksson (Ólafshúsum)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðmundur Eiríksson''' bóndi í Ólafshúsum fæddist 1793 í Reynisdal í Mýrdal og lést 5. júní 1846 í Dölum.<br> Foreldrar hans voru Eiríkur Ólafsson b...) |
m (Verndaði „Guðmundur Eiríksson (Ólafshúsum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 12. mars 2014 kl. 20:13
Guðmundur Eiríksson bóndi í Ólafshúsum fæddist 1793 í Reynisdal í Mýrdal og lést 5. júní 1846 í Dölum.
Foreldrar hans voru Eiríkur Ólafsson bóndi í Reynisdal, f. 1768 í Ytri-Ásum í Skaftártungu, d. 15. nóvember 1827 á Götum í Mýrdal, og fyrsta kona hans Ingibjörg Pétursdóttir húsfreyja, f. 1749 á Reyni í Mýrdal, d. 27. apríl 1818 á Norður-Fossi þar.
Guðmundur var með foreldrum sínum í Reynisdal 1801, léttapiltur í Reynisholti 1816.
Hann var kominn til Eyja 1827, var þá vinnumaður á Vesturhúsum.
Hann var bóndi í Ólafshúsum 1835 og 1840, ekkill, vinnumaður á Búastöðum 1845, ekkill í Dölum við andlát 1846.
Kona Guðmundar, (18. júlí 1827), var Margrét Þorsteinsdóttir húsfreyja í Ólafshúsum f. 18. apríl 1805, d. 9. desember 1842.
Þau Margrét eignuðust ekki börn með vissu.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.