„Þuríður Högnadóttir (Kornhól)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 13: Lína 13:
Börn þeirra hér:

Börn þeirra hér:

1. Kristján Bjarnason, f. 30. janúar 1800, d. 5. febrúar 1801.

1. Kristján Bjarnason, f. 30. janúar 1800, d. 5. febrúar 1801.

2. Kristján Bjarnason, dáinn 16. febrúar 1801, 6 daga gamall.

Stjúpbörn Bjarna, börn Þuríðar:

Stjúpbörn Bjarna, börn Þuríðar:

3. [[Jóhanna Jónsdóttir (Vilborgarstöðum)|Jóhanna Jónsdóttir]] húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1788, d. 10. júní 1848.

2. [[Jóhanna Jónsdóttir (Vilborgarstöðum)|Jóhanna Jónsdóttir]] húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1788, d. 10. júní 1848.

4. Jón Jónsson, f. 1792, hrapaði úr Elliðaey 1805.

3. Jón Jónsson, f. 1792, hrapaði úr Elliðaey 1805.

5. [[Jónas Einarsson Vestmann]] formaður, f. 1798, d. 1834 í Þurfalingsslysinu.

4. [[Jónas Einarsson Vestmann]] formaður, f. 1798, d. 1834 í Þurfalingsslysinu.

{{Heimildir|
{{Heimildir|

Útgáfa síðunnar 10. janúar 2014 kl. 10:49

Þuríður Högnadóttir húsfreyja í Kornhól fæddist 1767 og lést 12. september 1801.
Aðfaranótt 10. febrúar 1790 var framið rán á Miðhúsum (sjá Miðhúsaránið). Var Bjarni Björnsson bóndi á Vilborgarstöðum talinn viðriðinn það og var dæmdur til þriggja ára fangavistar í Reykjavík 13. júlí 1791.
Þar kynntist hann Þuríði Högnadóttur, sem dæmd hafði verið fyrir fjögur frillulífsbrot, þ.e. barneignir án hjónabands.
Að lokinni vist bjuggu þau saman í Hólakoti í Reykjavík.
Bjarni æskti skilnaðar við konu sína Ingibjörgu Hreiðarsdóttur vegna hórdómsbrots hennar, en hún hafði eignast barn með Páli Guðmundssyni á Vilborgarstöðum 1792. Fékk hann skilnað frá henni 16. júlí 1798.

I. Einn af barnsfeðrum Þuríðar var Einar Þorvaldsson skósmiður í Reykjavík.
Barn þeirra var
Jónas Einarsson Vestmann formaður, f. 1798, d. 1834.

II. Maður Þuríðar í Eyjum, (14. maí 1799), var Bjarni Björnsson, síðar á Miðhúsum, f. 1752, d. 23. nóvember 1827.
Þau fluttust fljótlega til Eyja og bjuggu í Kornhól. Börn Þuríðar fylgdu þeim til Eyja. Sonur hennar Jónas Einarsson, síðar Vestmann varð síðar formaður á Þurfalingi og lést eftir að bátnum hlekktist á í Leiðinni 5. mars 1834.
Börn þeirra hér:
1. Kristján Bjarnason, f. 30. janúar 1800, d. 5. febrúar 1801.
Stjúpbörn Bjarna, börn Þuríðar:
2. Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1788, d. 10. júní 1848.
3. Jón Jónsson, f. 1792, hrapaði úr Elliðaey 1805.
4. Jónas Einarsson Vestmann formaður, f. 1798, d. 1834 í Þurfalingsslysinu.

Heimildir