„Guðmundur Hávarðsson (Steinmóðshúsi)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 20: | Lína 20: | ||
4. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 29. mars 1839 á Gjábakka, d. 4. apríl 1839.
| 4. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 29. mars 1839 á Gjábakka, d. 4. apríl 1839.

5. [[Jóhanna Guðmundsdóttir (Steinmóðshúsi(|Jóhanna Guðmundsdóttir]] húsfreyja, f. 1. október 1841 á Gjábakka. Hún fór til Vesturheims, lést 22. apríl 1935 í Mapleton, Utah.
| 5. [[Jóhanna Guðmundsdóttir (Steinmóðshúsi(|Jóhanna Guðmundsdóttir]] húsfreyja, f. 1. október 1841 á Gjábakka. Hún fór til Vesturheims, lést 22. apríl 1935 í Mapleton, Utah.

6. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 10. október 1844 í Tómthúsi, d. | 6. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 10. október 1844 í Tómthúsi, d. 20. október 1844.

7. [[Guðmundur Guðmundsson (Fögruvöllum)|Guðmundur Guðmundsson]] sjómaður á [[Fögruvellir|Fögruvöllum]], f. 22. nóvember 1847, d. 10. febrúar 1890 á Fögruvöllum.
| 7. [[Guðmundur Guðmundsson (Fögruvöllum)|Guðmundur Guðmundsson]] sjómaður á [[Fögruvellir|Fögruvöllum]], f. 22. nóvember 1847, d. 10. febrúar 1890 á Fögruvöllum.

8. Ísleikur Guðmundsson, f. 28. janúar 1851 í Tómthúsi, d. 9. febrúar 1851.
| 8. Ísleikur Guðmundsson, f. 28. janúar 1851 í Tómthúsi, d. 9. febrúar 1851.

Útgáfa síðunnar 27. desember 2013 kl. 22:28
Guðmundur Hávarðsson sjómaður, tómthúsmaður í Steinmóðshúsi fæddist 1810 í Stóru-Mörk u. Eyjafjöllum og lést 28. maí 1860.
Faðir hans var Hávarður bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, síðar húsmaður í Garði í Gull. f. 1782 á Kálfafelli í Suðursveit, A-Skaft., drukknaði 2. júní 1832 frá Sandgerði, Erlendsson bónda á Hellum í Suðursveit 1801, f. 1744, Erlendssonar, f. 1715, Sigurðssonar og konu Erlendar Sigurðssonar, Elínar húsfreyju, f. (1715), Hallsdóttur.
Móðir Hávarðar og kona Erlendar á Hellum var Þórdís húsfreyja, f. 1749, Jónsdóttir bónda á Felli í Suðursveit, f. (1735), Stefánssonar sýslumanns, og konu Sigurðar sýslumanns, Þórunnar Jónsdóttur húsfreyju.
Kona Jóns á Felli var Sigríður húsfreyja, f. 1720, Sigmundsdóttir.
Móðir Guðmundar Hávarðssonar og kona Hávarðar var Vilborg húsfreyja og yfirsetukona í Stóra-Dalssókn 1830-1866, f. 1779 í Stóru-Mörk u. Eyjafjöllum, d. 1. september 1869, Oddsdóttir. Móðir Vilborgar var Katrín Þorleifsdóttir, f. 1746, d. um 1814.
Guðmundur var með foreldrum sínum á Rauðafelli 1816. Hann var 26 ára vinnumaður í Drangshlíð u. Eyjafjöllum 1835.
Hann var búandi á Gjábakka 1840 með Ragnhildi konu sinni og Vilborgu dóttur sinni 6 ára. Þau bjuggu í Steinmóðshúsi 1845. Þá var Vilborg horfin og var í fóstri á Löndum. Jóhanna var mætt, 5 ára.
Við manntal 1850 var Guðmundur mættur, þriggja ára.
I. Barnsmóðir Guðmundar var Halldóra Guðmundsdóttir, ógift vinnukona í Steinum u. Eyjafjöllum 1835, og þar var barn þeirra Vilborg eins árs.
Barnið var:
1. Vilborg Guðmundsdóttir vinnukona, f. 8. september 1834 í Steinasókn u. Eyjafjöllum, d. 26. júní 1887.
II. Kona Guðmundar var Ragnhildur Ísleiksdóttir húsfreyja, f. 2. ágúst 1808, d. 25. janúar 1865.
Börn þeirra hér:
2. Guðmundur Guðmundsson, f. 1835 í Drangshlíð.
3. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 18. febrúar 1837 í Drangshlíð, d. 25. febrúar 1837.
4. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 29. mars 1839 á Gjábakka, d. 4. apríl 1839.
5. Jóhanna Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1. október 1841 á Gjábakka. Hún fór til Vesturheims, lést 22. apríl 1935 í Mapleton, Utah.
6. Ragnhildur Guðmundsdóttir, f. 10. október 1844 í Tómthúsi, d. 20. október 1844.
7. Guðmundur Guðmundsson sjómaður á Fögruvöllum, f. 22. nóvember 1847, d. 10. febrúar 1890 á Fögruvöllum.
8. Ísleikur Guðmundsson, f. 28. janúar 1851 í Tómthúsi, d. 9. febrúar 1851.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- FamilySearch.org
- Íslendingabók.is.
- Ljósmæður á Íslandi 1-2. Ritstjóri Björg Einarsdóttir. Ljósmæðrafélag Íslands 1984.
- Lögréttumannatal. Sögurit. Einar Bjarnason. Sögufélag gaf út. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1952-1955.
- Manntöl.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
- Ættartölubækur Jóns Espólíns, p.939.
- Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.