„Ingibjörg Hreiðarsdóttir (Vilborgarstöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 19: Lína 19:


IV. Ingibjörg átti barn með Gissuri Helgasyni frá Hörgslandi á Síðu:<br>
IV. Ingibjörg átti barn með Gissuri Helgasyni frá Hörgslandi á Síðu:<br>
7. Sigríður Gissurardóttir, f. 26. október 1801.<br>
7. Sigríður Gissurardóttir, f. 26. október 1801, d. 4. nóvember 1801.<br>
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].

Útgáfa síðunnar 25. október 2013 kl. 21:11

Ingibjörg Hreiðarsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum fæddist 1762. Faðir hennar mun hafa verið Hreiðar Hreiðarsson bóndi á Kirkjubæ, f. 1721. Ætt ókunn.
Ingibjörg var á Kirkjubæ 1787. Hún var ráðskona hjá Páli Guðmundssyni á Vilborgarstöðum 1801.
Bjarni maður hennar var viðriðinn Miðhúsaránið og var dæmdur til fangavistar í Rvk. Þar kynntist hann fanganum Þuríði Högnadóttur og tóku þau saman, er vistun var lokið. Óskaði Bjarni skilnaðar frá Ingibjörgu, en hún hafði átt barn með öðrum manni, meðan á afplánun Bjarna stóð.
I. Barn með Einari Guðmundssyni
1. Guðmumdur Einarsson, f. 30. mars 1785, d. 7. apríl 1785 úr ginklofa.

II. Fyrri maður Ingibjargar (7. október 1787, skildu 16. júlí 1798): Bjarni Björnsson bóndi á Vilborgarstöðum, síðar í Kornhól og á Miðhúsum, f. 1752 í Ásgarði í Landbroti, d. 23. nóvember 1827.
Börn:
Börn Bjarna og Ingibjargar hér:
2. Guðríður Bjarnadóttir, f. 26. desember 1787, d. 4. janúar 1788.
3. Sveinn Bjarnason, f. 4. desember 1788, d. 11. desember 1788 úr ginklofa.
4. Guðríður Bjarnadóttir, f. 5. janúar 1791, d. 1. febrúar 1791.
5. Vigdís Bjarnadóttir, f. 1792, d. 22. febrúar 1792, 5 daga gömul.

III. Síðari maður Ingibjargar var Páll Guðmundsson bóndi og ekkill á Vilborgarstöðum 1801, f. 1765.
Barnið þeirra var
6. Guðmundur Pálsson, f. 2. janúar 1798.

IV. Ingibjörg átti barn með Gissuri Helgasyni frá Hörgslandi á Síðu:
7. Sigríður Gissurardóttir, f. 26. október 1801, d. 4. nóvember 1801.


Heimildir