„Ritverk Árna Árnasonar/Arinbjörn Ólafsson (Garðinum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Arinbjörn Ólafsson (Garðinum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Ekkert breytingarágrip
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Arnbjörn Ólafsson (Garðinum).jpg|300px|thumb|''Arinbjörn Ólafsson með bræðrum sínum og móður.]]
'''''<big>Kynning</big>''''':<br>
'''''<big>Kynning</big>''''':<br>



Útgáfa síðunnar 22. september 2013 kl. 18:05

Arinbjörn Ólafsson með bræðrum sínum og móður.

Kynning:

Arinbjörn Axel Ólafsson fæddist 24. október 1895 og lést 13. apríl 1960.
Foreldrar hans voru Ólafur Arinbjarnarson verslunarstjóri, f. 17. ágúst 1870, d. 5. ágúst 1913 og kona hans Sigríður Eyþórsdóttir húsfreyja, f. 12. nóvember 1872, d. 15. febrúar 1942.

Arinbjörn var með foreldrum sínum og systkinum í Ólafshúsi í Vík í Mýrdal 1901.
Hann var 15 ára með fjölskyldunni í Sjávarborg í Borgarnesi 1910.
Við manntal 1920 var hann á Borg, bókhaldari, rak kvikmyndasal. Hann var þá eigandi að Borg að hálfu.
Hann fluttist síðar til Hafnarfjarðar.

Arinbjörn var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona, (skildu), Arinbjarnar Axels var Ragna Þorvarðardóttir, f. 18. janúar 1899, d. 16. mars 1991.
Barn þeirra var:
Ólafur Högni Arinbjarnarson bifreiðarstjóri, f. 15. júní 1927, d. 26. nóvember 1991, ættleiddur af Agli Jónassyni í Njarðvík og konu hans, Sigurbjörgu Ögmundsdóttur, en Ragna og Sigurbjörg voru systradætur.

II. Síðari kona Arinbjarnar var Guðný Halldórsdóttir Ásmundssonar Jónssonar frá Norðfirði, f. 1. febrúar 1911, d. 24. mars 1982. Þau voru búsett í Hafnarfirði. Þau áttu ekki börn saman.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara: Bjargveiðimannatal.
Arinbjörn er lágur vexti, ljóshærður og ljós í andliti, þrekinn og sterklega vaxinn. Hann er þungur nokkuð í skapi, til baka, feiminn og virkar nærri mannfælinn, en í fámenni og meðal vina er hann skrafhreifinn og allkátur. Hann var vel styrkur og góður verkmaður.
Hann stundaði nokkuð veiðar í Elliðaey og var furðu fljótur að komast á lagið, þótt ekki næði hann verulegri leikni, enda lét hann af veiðiferðum áður. Hann var sagður góður félagi í útey og vellátinn, og hafði mesta yndi af úteyjalífinu.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit


Heimildir