„Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Auðbjörg Ástrós, unga víf“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 4: Lína 4:
::::::::Úr fórum Árna Árnasonar
::::::::Úr fórum Árna Árnasonar


 
[[Mynd:Auðbjörg_Ástrós_Árnadóttir.jpg|thumb|250px|''Auðbjörg Ástrós Árnadóttir.]]
::::::::<big>Auðbjörg Ástrós, unga víf</big>
::::::::<big>Auðbjörg Ástrós, unga víf</big>



Núverandi breyting frá og með 21. september 2013 kl. 18:49




Úr fórum Árna Árnasonar
Auðbjörg Ástrós Árnadóttir.
Auðbjörg Ástrós, unga víf


Auðbjörg Ástrós, unga víf,
Árna, sem er dóttir.
Frá henni hverfi hryggð og kíf,
en heilla veitist gnóttir.
Veitist henni viskan há,
velgengni með sanna.
Hljóti jafnan hringagná
hylli Guðs og manna.
Farsældar hún feti veg
fram til lífsins enda.
Gæskan Drottins guðdómleg
gef henn´i í dýrð hans lenda.
Henni, ef auðlegð hlotnist fá,
hjálpi þurfamönnum,
hún fær launin himnum á
heitin Guð af sönnum.
Hennar líði ævin öll
með ánægju og sóma.
Síðan Guðs í himna höll
hljót´i um eilífð ljóma.
Mitt svo þrjóta masið skal,
minnka óðar gnóttir.
Enda ég mitt óbreytt tal,
– Ingibjörg Jónsdóttir.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit