„Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Eykyndill 20 ára“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða:

::::::::::Úr fórum Árna Árnasonar
:::::::::250px
::::::::::'''''EYKYNDILL 20 ÁRA'''''
:::::::::Lag: Ég elska hafið.

m (Verndaði „Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Eykindill 20 ára“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 10. september 2013 kl. 22:44

Úr fórum Árna Árnasonar

EYKYNDILL 20 ÁRA

Lag: Ég elska hafið.
Vort óskabarn, við tvítugs tímamót,
mátt teljast ungt, en komið vel á fót.
Þú hefir unnið afrek bernsku frá,
sem allir meta, þakka, lofa og dá.
Um brimaströnd þú berð í hendi ljós,
að björgun vinnur jafnt til lands og sjós,
af ósérplægni eins um nótt sem dag,
í allra þágu, að bættum þjóðarhag.
Vér óskum, að þú lýsir langa stund
til lands-vors - heilla ávaxtir þitt pund,
að giftudrjúg þín vinni hjálparhönd,
um hafsins djúp, um fjall, um dal og strönd.
Svo lengi brimið brotnar upp við sand,
að byggt er okkar kæra föðurland,
og eygló björt á eyjafjöllin skín,
af ást og þökk mun verða getið þín.
Sveinbjörn Á. Benónýsson