„Ritverk Árna Árnasonar/Dánarfregn“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Viglundur færði Ritverk Árna Árnasona/Dánarfregn á Ritverk Árna Árnasonar/Dánarfregn) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 10. september 2013 kl. 21:21
- Úr fórum Árna Árnasonar
- Við andlát Kjartans Jónssonar
- bókbindara 3. desember 1940¹)
- Við andlát Kjartans Jónssonar
- Hjartað þráir það ég sver,
- þig minn kæri vinur.
- Örlög valda að innst hjá mér
- eitthvað berst og stynur.
- Hæstu manna hylli naut
- hetja í lífsins stríði.
- Heiðarleikans hálu braut
- hann gekk æ með prýði.
- Stefndi að marki hljótt og hátt,
- hlynnti að samtíðinni.
- Engu, sem var ljótt og lágt,
- laut hann nokkru sinni.
¹)Kjartan var sonur Jóns Eyjólfssonar og Sigríðar Sighvatsdóttur á Kirkjubæ og því bróðir Lofts Jónssonar á Vilborgarstöðum og hálfbróðir, af sömu móður, Júlíönu Sigurðardóttur á Búasatöðum.
Hann var alinn upp á Bústöðum hjá Júlíönu og Pétri Lárussyni.
(Heimaslóð).