„Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Kveðið í Slippnum“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: <br> <br> <br> <center> Úr fórum Árna Árnasonar</center> <big><big><center> Kveðið í Slippnum</center></big></big> ::::::::::::Brynjólfur Einarsson: :::::::::::::Ský...) |
m (Verndaði „Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Kveðið í Slippnum“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 10. september 2013 kl. 20:42
- Skýfall
- Vantar þurrk og vantar birtu,
- vætan fellir mig.
- Nú þyrftu allir aukaskirtu
- utan yfir sig. —
- Rosatíð
- Ekki er búið enn að kanna
- alla hluti í náttúrunni
- né, hvort hugir margra manna
- megna að breyta veðráttunni.
- Mb. Björgvin datt í slippnum
- Fjarskalega fór þetta illa með hann,
- flatur lenti Björgvin niður á sleðann.
- Reykdal sagði, og var það mjög til vona,
- voðalega slæmt að fá hann svona.
- Agalegur vindur vatt
- veika grenihæla.
- Báturinn hann Björgvin datt
- í brautina hans Sæla.
- Guðmundur á Háeyri
- um brennivínshækkun.
- Guðmundur á Háeyri
- Andskoti er Dauðinn dýr,
- drjúg er stjórnarbótin.
- Verðið fullar fjórar kýr,
- fæddar um aldamótin.
- Sögin góða
- Eins og brygði ofan í lög
- eik með harða kvisti,
- beitti enginn betri sög,
- bútaði jafnt og risti.