„Úr fórum Árna Árnasonar. Ókunnur höfundur/Vorsins vor“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða:

:::::::Úr fórum Árna Árnasonar
::::::::Vorsins vor ::::::Vorsins vor, sem klakaböndin klýfur
::::::kraftur þinn í leyndust fylgsni skín.<b...) |
m (Verndaði „Ritverk Árna Árnasonar/Vorsins vor“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 20. ágúst 2013 kl. 14:40
- Úr fórum Árna Árnasonar
- Vorsins vor
- Vorsins vor, sem klakaböndin klýfur
- kraftur þinn í leyndust fylgsni skín.
- Yfir mínum andans vonum svífur,
- að mér veitist sumargjöfin þín.
- Heilagleikans birtan brautryðjandi
- bú þér veg í gegnum hjarta mitt.
- Komdu inn, þú kraftur allsvaldandi,
- kom sem fyrst með sólaraflið þitt.
- Vorsins vor, sem klakaböndin klýfur
- Þegar vorsins andi klakann kyssir,
- klökknar rótin, leysist fjötrum frá.
- Sambandið, ef sólin eigi missir
- sælan fundin ofan að er þá.
- Þeim er nóg, er nægtir drottins finna,
- náðarhöndin við oss örlát er.
- Gjafir sínar lætur hann ei linna,
- lífsins viðhald um það vitna ber.
- Þegar vorsins andi klakann kyssir,
- Stönzum við og heyrum himna lagið:
- Harpa vorsins ómar allt í kring.
- Rísum upp og bindum bræðralagið,
- birtum það frá eigin verkahring.
- Elska guð af öllu hjarta þínu
- og þinn bróður eins og sjálfan þig.
- Til vor drottinn lagði þessa línu,
- lögmálið æ endurtekur sig.
- Stönzum við og heyrum himna lagið:
- Sól og dögg eins fátækum er fundin.
- Faðir ljóssins gefur öllum jafnt.
- Bent var oss að skoða liljulundinn,
- loftsins fuglar einnig fá sinn skammt.
- Náttúran um nægtir sínar talar,
- nærast lauf og ljúf út springa blóm.
- Andvarinn í úðans öldum hjalar
- óort ljóð um lífsins skapadóm.
- (Höf. ókunnur)
- Sól og dögg eins fátækum er fundin.