„Sveinbjörn Einarsson (Þorlaugargerði)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
m (Sveinbjörn Einarsson færð á Sveinbjörn Einarsson frá Þorlaugargerði: vegna tengla) |
|
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 26. mars 2013 kl. 21:27
Sveinbjörn Einarsson fæddist að Þorlaugargerði í Vestmannaeyjum 12. júní 1890. Foreldrar hans voru Einar Sveinsson og Guðríður Helgadóttir.
Sveinbjörn byrjaði ungur sjómennsku. Árið 1926 var hann formaður á Hebron í eina vertíð en hann starfaði aðallega sem vélamaður.
Sveinbjörn lærði trésmíði á yngri árum og eftir að hann hætti sjómennsku stundaði hann þá iðn auk þess sem hann veitti ungum mönnum tilsögn í þeirri grein. Á fjórða áratug síðustu aldar keypti hann húsið Hljómskálann og var með smíðaverkstæði þar í kjallaranum.
Heimildir
- Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.