„Blik 1939, 6. tbl./Söngur Sveins“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 7: | Lína 7: | ||
:::::[[Loftur Guðmundsson]], kennari: | :::::::[[Loftur Guðmundsson]], kennari: | ||

Lína 30: | Lína 30: | ||
:::::Ég veit að gæfan bíður mín handan jökla og heiða.
| :::::Ég veit að gæfan bíður mín handan jökla og heiða.

::::::Og hvergi nema þar, — nema þar.
| ::::::Og hvergi nema þar, — nema þar.

{{Blik}} | {{Blik}} |
Núverandi breyting frá og með 6. mars 2011 kl. 20:42
Úr söngleiknum: „Í brekkunni við fossinn.“
- Loftur Guðmundsson, kennari:
- Söngur Sveins.
- Í blámóðu fjarlægðar blika tindar fjalla
- og bjarma slær á jöklanna silfurstalla.
- Úr blámóðu fjarlægðar hug minn heilla og kalla
- hljómþýðar raddir ... Af stað ... Af stað.
- Í blámóðu fjarlægðar býr svo margt í leynum.
- Þar bjóða æfintýrin sitt gull þeim einum
- sem hræðist ekki veglausar auðnir hrauns og heiða.
- Hug minn töfrar það. — Aðeins það.
- Hug minn töfrar það. — Aðeins það.
- Í blámóðu fjarlægðar blika tindar fjalla
- Hvað stoðar þeim að vona, sem hýma stöðugt heima. —
- — Í huganum láta sig gullið dreyma.
- Þeim einum sem ei hikar við að halda tæpar leiðir
- hamingjan veitir sitt glæsta svar.
- Ég hræðist ekki fjöllin, hindranir og þrautir.
- Hugdjarfur ég ryð mínar eigin brautir.
- Ég veit að gæfan bíður mín handan jökla og heiða.
- Og hvergi nema þar, — nema þar.
- Og hvergi nema þar, — nema þar.
- Hvað stoðar þeim að vona, sem hýma stöðugt heima. —