„Blik 1976/Kirkjubæjarjarðirnar, mynd“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Blik 1976/Kirkjubæjarjarðirnar, mynd“ [edit=sysop:move=sysop])
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 10. október 2010 kl. 18:42

Kirkjubæjarjarðirnar Kirkjubæjarjarðirnar í Vestm.eyjm voru 8.

Kirkjubæjarjarðirnar í Vestmannaeyjum voru 8. Á þessari mynd sjást íbúðarhúsin á þrem bæjum. Á miðri mynd blasir við íbúðarhús hjónanna frú Helgu Þorsteinsdóttur og Þorbjarnar bónda Guðjónssonar ásamt hlöðu og verkfærahúsi. Til vinstri við íbúðarhús þeirra hjóna stendur íbúðarhúsið á svokölluðum Mið-Hlaðbæ, hús frú Guðrúnar Hallvarðsdóttur og Jóns Valtýssonar bónda, og svo barna þeirra. - Til hægri á myndinni sést á þekju íbúðarhúss frú Lilju Sigfúsdóttur og Péturs bónda Guðjónssonar, - ber yfir fjósþakið. - Allar þessar byggingar brunnu til ösku eða fóru undir hraun í byrjun eldgossins í janúarlok 1973.