„Blik 1961/Örn Tryggvi Johnsen“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 5: | Lína 5: | ||
Örn Tryggvi Johnsen | |||
''F. 30. jan. 1944. - D. 9. okt. 1960''
| ''F. 30. jan. 1944. - D. 9. okt. 1960''

NOKKUR MINNINGARORÐ | NOKKUR MINNINGARORÐ | ||

[[Mynd: 1961 b 10.jpg|left|thumb|350px|''Örn Tryggvi Johnsen.'']] | [[Mynd: 1961 b 10.jpg|left|thumb|350px|''Örn Tryggvi Johnsen.'']] | ||
Lína 20: | Lína 20: | ||
Að mínum dómi var Örn Tryggvi mikið og gott mannsefni, sem lífið sjálft hefði sannað okkur, ef honum hefði enzt aldur. Að missi slíkra ungmenna er þjóðarskaði, enda þótt fráfall þeirra sé vitaskuld sárast foreldrum, systkinum og öðrum nánustu ástvinum.
| Að mínum dómi var Örn Tryggvi mikið og gott mannsefni, sem lífið sjálft hefði sannað okkur, ef honum hefði enzt aldur. Að missi slíkra ungmenna er þjóðarskaði, enda þótt fráfall þeirra sé vitaskuld sárast foreldrum, systkinum og öðrum nánustu ástvinum.

Við, sem nutum þess að hafa þennan efnilega ungling í skóla með okkur, ýmist sem kennarar hans eða skólafélagar, biðjum Blik að tjá foreldrum hans og öðrum nákomnum ástvinum og venzlamönnum dýpstu samúð í missi þeirra og söknuði. | Við, sem nutum þess að hafa þennan efnilega ungling í skóla með okkur, ýmist sem kennarar hans eða skólafélagar, biðjum Blik að tjá foreldrum hans og öðrum nákomnum ástvinum og venzlamönnum dýpstu samúð í missi þeirra og söknuði. | ||
:::::::::::::::[[Þorsteinn Þ. Víglundsson|''Þ.Þ.V.'']] | :::::::::::::::::::[[Þorsteinn Þ. Víglundsson|''Þ.Þ.V.'']] | ||
Minningarsjóður um Örn Tryggva Johnsen | |||

Á s.1. vetri stofnuðu nemendur Gagnfræðaskólans minningarsjóð um samnemanda sinn, Örn Tryggva Johnsen, með kr. 3000,00 framlagi úr sjóði Málfundafélags skólans. Síðan hafa bætzt í sjóð þennan nokkrir peningar, svo að við s.1. áramót nam hann kr. 4366,75.
| Á s.1. vetri stofnuðu nemendur Gagnfræðaskólans minningarsjóð um samnemanda sinn, Örn Tryggva Johnsen, með kr. 3000,00 framlagi úr sjóði Málfundafélags skólans. Síðan hafa bætzt í sjóð þennan nokkrir peningar, svo að við s.1. áramót nam hann kr. 4366,75.

Núverandi breyting frá og með 15. ágúst 2010 kl. 18:06
Föstudaginn 7. okt. 1960 átti sér stað átakanlegt slys hér í Eyjum. Örn Tryggvi Johnsen, Faxastíg 4, varð fyrir voðaskoti og andaðist tveim dögum síðar.
Örn Tryggvi var sonur hjónanna Gísla Friðriks Johnsen, útgerðarmanns, og k.h. Friðbjargar Tryggvadóttur. Gísli
Friðrik er sonur Gísla J. Johnsen, stórkaupmanns.
Örn Tryggvi hóf nám í Gagnfræðaskólanum hér haustið 1957, þá 13 ára gamall. Á s.l. hausti settist hann í 4. bekk skólans. Hann bar þess vitni öll árin sín í skólanum, að hann var bæði vel gerður og vel upp alinn. Honum sóttist námið vel
bæði vegna góðra námsgáfna og elju. Hann var vaxandi námsmaður, þegar hann féll frá.
Örn Tryggvi var jafnan hæglátur í daglegri framkomu, athugull og skýr. Samvizkusamur var hann um öll skyldustörf sín, en lét lítið yfir sér á skólabekk. Sjaldan mun hann hafa komið ólesinn í tíma í skólanum og oftast með, þegar á var leitað. Hann átti ríka fegurðarhneigð og var hið mesta snyrtimenni.
Ég varð aldrei annars var, en að Örn væri hinn reglusamasti unglingur, sem neytti hvorki tóbaks né áfengis. Fyrir nokkrum árum hefði mátt kalla það fjarstæðukennt að taka slíkt fram í stuttri minningargrein um 16 ára ungling hér í Eyjum. Nú er öldin önnur.
Að mínum dómi var Örn Tryggvi mikið og gott mannsefni, sem lífið sjálft hefði sannað okkur, ef honum hefði enzt aldur. Að missi slíkra ungmenna er þjóðarskaði, enda þótt fráfall þeirra sé vitaskuld sárast foreldrum, systkinum og öðrum nánustu ástvinum.
Við, sem nutum þess að hafa þennan efnilega ungling í skóla með okkur, ýmist sem kennarar hans eða skólafélagar, biðjum Blik að tjá foreldrum hans og öðrum nákomnum ástvinum og venzlamönnum dýpstu samúð í missi þeirra og söknuði.
Á s.1. vetri stofnuðu nemendur Gagnfræðaskólans minningarsjóð um samnemanda sinn, Örn Tryggva Johnsen, með kr. 3000,00 framlagi úr sjóði Málfundafélags skólans. Síðan hafa bætzt í sjóð þennan nokkrir peningar, svo að við s.1. áramót nam hann kr. 4366,75.
Minningarsjóður þessi skal vera deild í „Minningar- og styrktarsjóði nemenda Gagnfræðaskólans“, en forseti Íslands staðfesti reglugerð hans árið 1947. Meginhluta vaxta hans skal varið til styrktar ungum Eyjamönnum, sem stunda nám, er atvinnulífi Eyjabúa má verða til varanlegrar eflingar.
Við, sem stöndum að sjóði þessum og starfinu í heild, vildum óska þess, að Eyjabúar vildu minnast þessa sjóðs, þegar þeir finna hvatir til að leggja fé af mörkum til eflingar ungu fólki hér til slíks náms.