„Sigurjón Auðunsson“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Svea Gestur.jpg|thumb| | [[Mynd:Sigurjón Auðunsson.jpg|thumb|200px|Sigurjón Auðunsson.]] | ||
[[Mynd:Svea Gestur.jpg|thumb|200px|Svea Norman og Sigurjón.]] | |||
'''Sigurjón Auðunsson''' fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu 4. apríl 1917 og lést 20. febrúar 2004.<br> | '''Sigurjón Auðunsson''' fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu 4. apríl 1917 og lést 20. febrúar 2004.<br> | ||
Foreldrar hans voru [[Auðunn Oddsson]] og [[Steinunn Sigríður Gestsdóttir]].<br> | Foreldrar hans voru [[Auðunn Oddsson]] og [[Steinunn Sigríður Gestsdóttir]].<br> |
Útgáfa síðunnar 13. september 2009 kl. 21:22
Sigurjón Auðunsson fæddist á Þykkvabæjarklaustri í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu 4. apríl 1917 og lést 20. febrúar 2004.
Foreldrar hans voru Auðunn Oddsson og Steinunn Sigríður Gestsdóttir.
Sigurjón var með foreldrum sínum í Skálmarbæ í Álftaveri 1918, á Snæbýli í Skaftártungu 1918-1919, hjá þeim í Reykjavík 1919-1924, í Eyjum 1924 og lengur. Hann var formaður í Eyjum, var með m/b Óðinn á sumarsíld 1940, með Gulltopp 1941, Erling I 1942-1944 og Veigu 1945-1948. Verkstjóri var hann lengi, um skeið hjá Bæjarútgerðinni og lengi hjá Ísfélaginu. Hann þótti reglusamur, með gott verksvit og skipulag og dugandi í hverju starfi.
Hann átti fjögur systkini, þau Gest, Harald, Bárð og Magneu Ernu.
Kona Sigurjóns var Sigríður Nikulásdóttir, f. 18. júlí 1914. Þau bjuggu á Haukabergi við Vestmannabraut og á Austurvegi 20. Síðast bjó Sigurjón í Kópavogi.
Börn þeirra Sigríðar voru Gylfi, Aðalsteinn og Ingibjörg.
Heimildir
- Björn Magnússon. Vestur-Skaftfellingar. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970–1973.
- Pers.
- Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum