„Bogi Finnbogason“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 20: Lína 20:
}}
}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Formenn]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]

Útgáfa síðunnar 20. júní 2007 kl. 14:00

Bogi Finnbogason.

Bogi Þ. Finnbogason fæddist á Eskifirði 4. júlí 1920 og lést 13. júlí 1995. Foreldrar hans voru María Þorleifsdóttir og Finnbogi Erlendsson.

Þann 29. desember kvæntist Bogi Dagnýju Þorsteinsdóttur, dóttur Þorsteins Jónssonar og Elínborgar Gísladóttur í Laufási. Fyrstu sautján árin bjuggu þau að Laufási og festist þá Laufásarnafnið við Boga og ætíð síðan var hann kallaður Bogi í Laufási. Bogi og Dagný eignuðust tvö börn, Guðnýju Bogadóttur hjúkrunarfræðing og Erlend Bogason sem meðal annars hefur getið sér gott orð sem kafari.

Eftir gos fluttust Bogi og Dagný aftur til Vestmannaeyja og keyptu sér þá hús að Höfðavegi 17 og bjuggu þar síðan. Bogi lést árið 1995, 75 ára gamall.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Boga:

Bogi við strauminn stinnur
stoðin er Þorgeirs Goða.
Finnbogasonurinn svinni
sorglaust á græði dorgar.
Breiðum á rostung reiða
ryður sér þétt á miðin.
Nýr er við stjóra-stýri
stála-bör hér um ála.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.