„Mylluhóll hjá Vilborgarstöðum“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
(setti flokk.) |
||
Lína 11: | Lína 11: | ||
*[[Sigfús M. Johnsen]]. ''Saga Vestmannaeyja.'' Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946.}} | *[[Sigfús M. Johnsen]]. ''Saga Vestmannaeyja.'' Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946.}} | ||
[[Flokkur:Örnefni]] | [[Flokkur:Örnefni]] | ||
[[Flokkur: Horfinn heimur]] |
Útgáfa síðunnar 19. janúar 2007 kl. 21:07
Mylluhóll eða Vindkvarnarhóll var hóll norður af Vilpu og í landnorður frá Austari Vilborgarstöðum, (Austurbænum).
Þar var ein af þrem kornmyllum í Eyjum. Ein var fyrir ofan Hraun, önnur í túni Stakkagerðis. Um skeið var reyndar mylla á brauðgerðarhúsi Garðsverzlunar, reist af Jens Benediktssen kaupmanni.
Mylluna á Vilborgarstöðum áttu þau hjónin Árni Einarsson hreppstjóri og þingmaður um hríð og Guðfinna Jónsdóttir Austmann, sem bjuggu þar. Var þessi mylla mest notuð.
Talsverður umbúnaður fylgdi myllunni. Allmikill 6 álna staur var grafinn niður í hólinn. Um hann snerist myllan. Ásinn var nefndur „draugur“ eins og hverfihlið nefndust í Eyjum, en þau voru algeng austur á bæjum.
Segl voru strengd á mylluvængina, þegar malað var. Af þeim sökum fauk myllan eitt sinn. Mun hún hafa eyðilagzt um 1890.
Eftir stóð lautin í hólnum fram að gosi.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1973.
- Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946.