„Mylluhóll hjá Vilborgarstöðum“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
mEkkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Mylluhóll''' eða [[Vindkvarnarhóll]] var hóll norður af Vilpu og í landnorður frá [[Vilborgarstaðir|Austari Vilborgarstöðum,]] (Austurbænum).
| '''Mylluhóll''' eða [[Vindkvarnarhóll]] var hóll norður af Vilpu og í landnorður frá [[Vilborgarstaðir|Austari Vilborgarstöðum,]] (Austurbænum).

Þar var ein af þrem kornmyllum í Eyjum. Ein var fyrir ofan [[Hraun]], önnur í túni [[Stakkagerði|Stakkagerðis.]] Um skeið var reyndar mylla á brauðgerðarhúsi [[Garðurinn|Garðsverzlunar]], reist af [[Jens Benediktssen]] kaupmanni.
| Þar var ein af þrem kornmyllum í Eyjum. Ein var fyrir ofan [[Hraun]], önnur í túni [[Stakkagerði|Stakkagerðis.]] Um skeið var reyndar mylla á brauðgerðarhúsi [[Garðurinn|Garðsverzlunar]], reist af [[Jens Benediktssen]] kaupmanni.

Mylluna á Vilborgarstöðum áttu þau hjónin [[Árni Einarsson]] hreppstjóri og þingmaður um hríð og [[Guðfinna Austmann|Guðfinna Jónsdóttir Austmann]], sem bjuggu þar. Var þessi mylla mest notuð.
| Mylluna á Vilborgarstöðum áttu þau hjónin [[Árni Einarsson]] hreppstjóri og þingmaður um hríð og [[Guðfinna Jónsdóttir Austmann|Guðfinna Jónsdóttir Austmann]], sem bjuggu þar. Var þessi mylla mest notuð.

Talsverður umbúnaður fylgdi myllunni. Allmikill 6 álna staur var grafinn niður í hólinn. Um hann snerist myllan. Ásinn var nefndur „[[draugur]]“ eins og hverfihlið nefndust í Eyjum, en þau voru algeng austur á bæjum.
| Talsverður umbúnaður fylgdi myllunni. Allmikill 6 álna staur var grafinn niður í hólinn. Um hann snerist myllan. Ásinn var nefndur „[[draugur]]“ eins og hverfihlið nefndust í Eyjum, en þau voru algeng austur á bæjum.

Segl voru strengd á mylluvængina, þegar malað var. Af þeim sökum fauk myllan eitt sinn í vindi. Mun hún hafa eyðilagzt um 1890.
| Segl voru strengd á mylluvængina, þegar malað var. Af þeim sökum fauk myllan eitt sinn í vindi. Mun hún hafa eyðilagzt um 1890.

Útgáfa síðunnar 19. janúar 2007 kl. 17:10
Mylluhóll eða Vindkvarnarhóll var hóll norður af Vilpu og í landnorður frá Austari Vilborgarstöðum, (Austurbænum).
Þar var ein af þrem kornmyllum í Eyjum. Ein var fyrir ofan Hraun, önnur í túni Stakkagerðis. Um skeið var reyndar mylla á brauðgerðarhúsi Garðsverzlunar, reist af Jens Benediktssen kaupmanni.
Mylluna á Vilborgarstöðum áttu þau hjónin Árni Einarsson hreppstjóri og þingmaður um hríð og Guðfinna Jónsdóttir Austmann, sem bjuggu þar. Var þessi mylla mest notuð.
Talsverður umbúnaður fylgdi myllunni. Allmikill 6 álna staur var grafinn niður í hólinn. Um hann snerist myllan. Ásinn var nefndur „draugur“ eins og hverfihlið nefndust í Eyjum, en þau voru algeng austur á bæjum.
Segl voru strengd á mylluvængina, þegar malað var. Af þeim sökum fauk myllan eitt sinn í vindi. Mun hún hafa eyðilagzt um 1890.
Eftir stóð lautin í hólnum fram að gosi.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1973.
- Sigfús M. Johnsen. Saga Vestmannaeyja. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946.