„Ritverk Árna Árnasonar/Bjarni Helgason (Heiði)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip

Lína 7: Lína 7:
Kona Bjarna, (11. júní 1955) er [[Helga Sigurðardóttir (Nýjabæ)|Helga Sigurðardóttir]] frá [[Nýibær|Nýjabæ]], f. 10. nóvember 1929, d. 14. apríl 2022.

Kona Bjarna, (11. júní 1955) er [[Helga Sigurðardóttir (Nýjabæ)|Helga Sigurðardóttir]] frá [[Nýibær|Nýjabæ]], f. 10. nóvember 1929, d. 14. apríl 2022.

Börn þeirra Helgu:

Börn þeirra Helgu:

1. [[Jóhann Bjarnason Helgasonar|Jóhann]], f. 14. október 1956.

1. [[Jóhann Bjarnason (stýrimaður)|Jóhann]], f. 14. október 1956.

2. Guðmundur Bjarnason, f. 7. júní 1962, d. 4. apríl 1963.

2. Guðmundur Bjarnason, f. 7. júní 1962, d. 4. apríl 1963.

Núverandi breyting frá og með 23. apríl 2024 kl. 11:24

Bjarni á Heiði.

Kynning.

Bjarni Helgason málari fæddist 26. júlí 1927 og lést 10. febrúar 2013.
Foreldrar Bjarna voru Helgi Guðlaugsson bifreiðarstjóri, f. 3. september 1901 á Eyrarbakka, d. 9. júní 1985, og kona hans Guðrún Jónína Bjarnadóttir, f. 31. júlí 1904, d. 2. apríl 1971.

Kona Bjarna, (11. júní 1955) er Helga Sigurðardóttir frá Nýjabæ, f. 10. nóvember 1929, d. 14. apríl 2022.
Börn þeirra Helgu:
1. Jóhann, f. 14. október 1956.
2. Guðmundur Bjarnason, f. 7. júní 1962, d. 4. apríl 1963.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Bjarni Helgason er ókvæntur (1954, nóvember), en opinberlega trúlofaður Helgu, fædd 10. nóvember 1929, Sigurðardóttur, fæddur 2. febrúar 1888, í Nýjabæ Þorsteinssonar og konu hans Jóhönnu, fædd 29. október 1898, dóttur Jónasar í Nýjabæ Helgasonar og konu hans Steinunnar Jónsdóttir frá Hallgeirsey formanns Brandssonar, (sjá um Jónas Helgason í Álseyjarbók.)
Bjarni hefir verið dálítið til lundaveiða bæði á heimalandinu, Brandinum, Álsey og víðar og er sagður vera lipur og líklegur til að verða góður veiðimaður með nægilegri þjálfun. En heilsa hans hefir ei verið góð síðastliðin ár, svo hann hefir dregist aftur úr. Hann er kátur og skemmtilegur og sagður ágætis félagi í útey og oft unnið meir en heilsa hans leyfði. Hann er rúmlega meðalhár, dálítið lotinn, magur og toginleitur, fremur fríður í andliti, svarthærður en hvítur í andliti. Bjarni er málari að iðn, flinkur í starfi sínu og einkar vel látinn af öllum, prúður í allri framkomu.

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
• Íslendingabók.
• Íslenskir málarar – Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson málari. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
• Manntöl.

Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.