„Oddur Ögmundsson“: Munur á milli breytinga
mEkkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 18: | Lína 18: | ||
{{Heimildir| | {{Heimildir| | ||
*''Upphaflega grein skrifaði [[Víglundur Þór Þorsteinsson]]'' | |||
*Björn Magnússon: ''Vestur-Skaftfellingar''. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970-1973. | *Björn Magnússon: ''Vestur-Skaftfellingar''. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970-1973. | ||
*''Ljósmæður á Íslandi''. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984. | *''Ljósmæður á Íslandi''. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984. |
Útgáfa síðunnar 19. desember 2006 kl. 21:12
Oddur Ögmundsson fæddist 1787 að Hvoli í Mýrdal og lézt 2. janúar 1837 á Kirkjubæ.
Foreldrar hans voru Ögmundur Björnsson (líklega) bóndi á Hvoli í Mýrdal 1777, f. 1751, d. 16. febrúar 1793 og barnsmóðir hans Ingigerður Árnadóttir ljósmóðir, f. 1764, d. 20. maí 1837.
Oddur var í Dölum 1801, bóndi í Gerði 2, 1816 og 1835.
Hann lézt úr holdsveiki.
Maki I, barnsmóðir: Katrín Oddsdóttir vinnukona í Kornhól.
Barn: Magnús, f. 26. jan. 1811, d. sama ár.
Maki II, (25. júlí 1813): Ingveldur Magnúsdóttir húsmóðir frá Löndum, f. í Yztabæliskoti u. Eyjafjöllum 2. janúar 1796, d. 13. október 1868 í Eyjum. Hún var systir Magnúsar í Háagarði, móðurföður Magnúsar í Hlíðarási Guðmundssonar. Hún var ekkja hjá syni sínum Magnúsi á Kirkjubæ 1845.
Börn:
- Sesselja, f. 10. ágúst 1815.
- Sigurður, f. 24. júlí 1817.
- Magnús skipherra, f. 24. október 1822, fórst með þilskipinu Helgu í apríl 1867.
- Oddur, f. 12. október 1826, d. 17. október sama ár.
- Þuríður, f. 12. maí 1829, d. 1903, giftist Þórarni Hafliðasyni mormónatrúboða 15. ágúst 1850, en hann drukknaði 6. marz 1852. Hún giftist svo Jóni Árnasyni í Sjólyst og Þorlaugargerði.
- Ingveldur, f. 2. nóvember 1831, á lífi á Kirkjubæ 1845.
Heimildir
- Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson
- Björn Magnússon: Vestur-Skaftfellingar. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970-1973.
- Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Sigfús M. Johnsen: Saga Vestmannaeyja. Reykjavík: Ísafoldarprentsmiðja H.F., 1946.
- Sigfús M. Johnsen: Þórarinn Hafliðason fyrsti mormónatrúboðinn í Vestmannaeyjum. Blik, 1960.