„Kristín Björg Jónsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 12: Lína 12:
[[Sturla Indriðason|Sturlu Indriðasonar]] á [[Hvassafell|Hvassafelli]], f. 1877, manns [[Jóhanna ´´Fríður´´ Lárusdóttir|Fríðar Lárusdóttur]], f. 1880, foreldra <br>
[[Sturla Indriðason|Sturlu Indriðasonar]] á [[Hvassafell|Hvassafelli]], f. 1877, manns [[Jóhanna ´´Fríður´´ Lárusdóttir|Fríðar Lárusdóttur]], f. 1880, foreldra <br>
[[Indíana Sturludóttir|Indíönu í Valhöll]], f. 1909, konu [[Már Frímannsson|Más Frímannssonar]], f. 1904, og <br>
[[Indíana Sturludóttir|Indíönu í Valhöll]], f. 1909, konu [[Már Frímannsson|Más Frímannssonar]], f. 1904, og <br>
[[Lára Sturludóttir|Láru]], f. 1905, konu bróður hans [[Þorgeir Frímannsson|Þorgeirs Frímannssonar]] verzlunarstjóra og kaupmanns í [[Geirabúð]] við [[Heimagata|Heimagötu]], f. 1901.  
[[Lára Sturludóttir|Láru]], f. 1905, konu bróður hans [[Þorgeir Frímannsson|Þorgeirs Frímannssonar]] kaupmanns í [[Felli| Felli]] við [[Heimagata|Heimagötu]], f. 1901.  


Eiginmaður Kristínar Bjargar var [[Magnús Tómasson (Hrafnabjörgum)|Jón Magnús Tómasson]], f. 1896.
Eiginmaður Kristínar Bjargar var [[Magnús Tómasson (Hrafnabjörgum)|Jón Magnús Tómasson]], f. 1896.

Útgáfa síðunnar 6. desember 2006 kl. 17:52

Kristín Björg Jónsdóttir húsmóðir á Hásteinsvegi 40 (mt 1930) fæddist 23. desember 1898 á Vattarnesi við Reyðarfjörð og lézt 17. september 1935 í Eyjum.

Ætt og uppruni

Foreldrar hennar voru Jón Oddsson bóndi á Vattarnesi, f. 4. marz 1856 í Borgargerði í Hólmasókn í Reyðarfirði og Karólína Sturludóttir, f. 24. október 1857. Foreldrar Karólínu voru Sturla Jónsson bóndi á Vattarnesi, Jónssonar bónda þar og kona hans Úlfheiður Björnsdóttir, Ásmundssonar.

Ættbogi í Eyjum

Sonur þeirra Sturlu Jónssonar og Karólínu var líka
Indriði Sturluson faðir Sigurbjargar konu Þorsteins Hálfdánarsonar á Hafranesi við Reyðarfjörð. Dætur þeirra voru:
Elín Aðalbjörg Þorsteinsdóttir, f. 1902, kona Kristmundar Jóhannssonar á Fífilgötu, f. 1899, foreldrar Gunnþóru, f. 1922, konu Helga Þorlákssonar kennara og skólastjóra, Guðnýjar Jóhönnu Valberg, f. 1926 og Þorkels, f. 1928, d. 1935; og
Jóhönnu Þorsteinsdóttur á Brekku, f. 1900, konu Guðna Jóhannssonar, f. 1905, bróður Kristmundar.
Indriði var einnig faðir
Sturlu Indriðasonar á Hvassafelli, f. 1877, manns Fríðar Lárusdóttur, f. 1880, foreldra
Indíönu í Valhöll, f. 1909, konu Más Frímannssonar, f. 1904, og
Láru, f. 1905, konu bróður hans Þorgeirs Frímannssonar kaupmanns í Felli við Heimagötu, f. 1901.

Eiginmaður Kristínar Bjargar var Jón Magnús Tómasson, f. 1896. Börn þeirra Kristína Bjargar:

  1. Jóna Karólína, f. 10. júní 1922.
  2. Jón Guðbjörn, f. 9. ágúst 1923, d. 31. janúar 1967.
  3. Jón Berg Halldórsson, f. 1. júlí 1935.

Kristín Björg lézt skömmu eftir fæðingu síðasta barns síns. Það var Jón Berg, sem varð kjörsonur Halldórs Elíasar Halldórssonar og Sigríðar Friðriksdóttur.

{Heimildir:

  • Jón Berg Halldórsson.
  • Ættir Austfirðinga.
  • Guðný Hálfdanardóttir
  • Pers.}