„Anna Konráðsdóttir (kennari)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Anna Konráðsdóttir. '''Anna Konráðsdóttir''' kennari fæddist 21. maí 1896 á Hofsstöðum í Skagafirði og lést 7. mars 1985.<br> Foreldrar hennar voru Konráð Arngrímsson bóndi, kennari á Ytri-Brekkum í Akrahreppi, f. 21. janúar 1856, d. 20. mars 1944, og kona hans Sigríður Björnsdóttir húsfreyja, f. 18. júlí 1872, d. 2. apríl 1948. Anna var með foreldrum sínum í æsku.<br> Hún nam í Kvennaskóilanum...)
 
m (Verndaði „Anna Konráðsdóttir (kennari)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 14. júní 2023 kl. 10:19

Anna Konráðsdóttir.

Anna Konráðsdóttir kennari fæddist 21. maí 1896 á Hofsstöðum í Skagafirði og lést 7. mars 1985.
Foreldrar hennar voru Konráð Arngrímsson bóndi, kennari á Ytri-Brekkum í Akrahreppi, f. 21. janúar 1856, d. 20. mars 1944, og kona hans Sigríður Björnsdóttir húsfreyja, f. 18. júlí 1872, d. 2. apríl 1948.

Anna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún nam í Kvennaskóilanum á Blönduósi 1919-1921, lauk kennaraprófi 1924, sat kennaranámskeið í Askov 1926, í Axvall í Svíþjóð 1929.
Anna var kennari í Víðidal í Hún. 1921-1922, smábarnakennari í Eyjum 1926-1929, kennari í Barnaskólanum í Eyjum 1929-1934, í Austurbæjarskólanum frá 1934-1966, stundakennari þar 1966-1968.
Hún sat í stjórn Stéttarfélags barnakennara í Reykjavík 1936-1942.
Anna bjó í Sólhlíð 19 í Eyjum. Hún var ógift og barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.