„Finnur Sigurjónsson (Rafnseyri)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Finnur Sigurjónsson''' bókavörður fæddist 14. nóvember 1919 á Rafnseyri og lést 18. ágúst 1997 á Borgarspítalanum.<br> Foreldrar hans voru Sigurjón Pálsson sjómaður, vélgæslumaður, f. 12. ágúst 1896, d. 15. ágúst 1975, og kona hans Helga Finnsdóttir húsfreyja, kjólameistari, f. 28. september 1895, d. 25. apríl 1989. Börn Helgu og Sigurjóns:<br> 1. Finnur Sigurjónsson (R...)
 
m (Verndaði „Finnur Sigurjónsson (Rafnseyri)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 12. desember 2022 kl. 09:52

Finnur Sigurjónsson bókavörður fæddist 14. nóvember 1919 á Rafnseyri og lést 18. ágúst 1997 á Borgarspítalanum.
Foreldrar hans voru Sigurjón Pálsson sjómaður, vélgæslumaður, f. 12. ágúst 1896, d. 15. ágúst 1975, og kona hans Helga Finnsdóttir húsfreyja, kjólameistari, f. 28. september 1895, d. 25. apríl 1989.

Börn Helgu og Sigurjóns:
1. Finnur Sigurfinnur Sigurjónsson, tvíburi, bókavörður á Seltjarnarnesi, f. 14. nóv. 1919 á Rafnseyri, d. 18. ágúst 1997. Hann var ókvæntur.
2. Sigurjón Helgi Sigurjónsson, tvíburi, f. 14. nóv. 1919 á Rafnseyri, d. 24. desember 1936.
3. Henný Dagný Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1922, d. 27. janúar 2005. Maður hennar var Einar Þorsteinsson rakarameistari, f. 19. ágúst 1921, d. 14. apríl 1978.
4. Ólöf Ingibjörg Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 4. október 1923 í Keflavík, d. 28. september 1994. Maður hennar var Helgi Eiríksson aðalbókari, f. 13. febrúar 1922 í Sandfelli í Öræfum, d. 13. nóvember 2009.
5. Pálína Sigurjónsdóttir húsfreyja, hjúkrunarforstjóri, f. 17. júní 1931 í Reykjavík. Maður hennar var Sigmundur Ragnar Helgason bankamaður, f. 7. desember 1927, d. 2. nóvember 2008.
6. Jóhanna Kristín Sigurjónsdóttir húsfreyja í New York, f. 31. maí 1935, d. 21. ágúst 2005. Maður hennar Fróði Ellerup.
Fósturdóttir þeirra fyrstu fimm ár ævinnar, dóttir Ólafar Ingibjargar dóttur þeirra er
7. Sigrún Dúfa Helgadóttir, f. 25. október 1942.

Finnur var með foreldrum sínum, flutti með þeim til Keflavíkur og aftur til Eyja 1924, bjó hjá þeim á Kirkjubæ. Þau fluttu til Reykjavíkur 1929.
Finnur varð bókavörður við Bókasafn Seltjarnarness.
Hann lést 1997, ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.