„Þórarinn Jónsson (Ármótum)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 1: | Lína 1: | ||
'''Þórarinn Gísli Jónsson''' útgerðarmaður, skrifstofumaður, bókhaldari, forstjóri, síðast í Hafnarfirði, fæddist 18. maí 1921 og lést 24. apríl 1987.
| '''Þórarinn Gísli Jónsson''' útgerðarmaður, skrifstofumaður, bókhaldari, forstjóri, síðast í Hafnarfirði, fæddist 18. maí 1921 og lést 24. apríl 1987.

Foreldrar hans voru [[Jón Gíslason (Ármótum)|Jón Gíslason]] útgerðarmaður, verkstjóri, verkamaður, þá í [[Sandprýði]], síðar á [[Ármót]]um (Ármóti), og kona hans [[Þórunn Markúsdóttir (Sandprýði)|Þórunn Markúsdóttir]] húsfreyja, f. 23. september 1892, d. 1. júní 1921.
| Foreldrar hans voru [[Jón Gíslason (Ármótum)|Jón Gíslason]] útgerðarmaður, verkstjóri, verkamaður, þá í [[Sandprýði]], síðar á [[Ármót]]um (Ármóti), f. 4. janúar 1888, d. 20. febrúar 1970, og kona hans [[Þórunn Markúsdóttir (Sandprýði)|Þórunn Markúsdóttir]] húsfreyja, f. 23. september 1892, d. 1. júní 1921.

Þórarinn ólst upp hjá föður sínum, bústýrunni Helgu ömmu sinni og fjölskyldunni á Ármótum.
| Þórarinn ólst upp hjá föður sínum, bústýrunni Helgu ömmu sinni og fjölskyldunni á Ármótum.

Útgáfa síðunnar 13. ágúst 2022 kl. 20:05
Þórarinn Gísli Jónsson útgerðarmaður, skrifstofumaður, bókhaldari, forstjóri, síðast í Hafnarfirði, fæddist 18. maí 1921 og lést 24. apríl 1987.
Foreldrar hans voru Jón Gíslason útgerðarmaður, verkstjóri, verkamaður, þá í Sandprýði, síðar á Ármótum (Ármóti), f. 4. janúar 1888, d. 20. febrúar 1970, og kona hans Þórunn Markúsdóttir húsfreyja, f. 23. september 1892, d. 1. júní 1921.
Þórarinn ólst upp hjá föður sínum, bústýrunni Helgu ömmu sinni og fjölskyldunni á Ármótum.
Þar bjó hann enn 1949, titlaður skrifstofumaður, en hann annaðist bókhald ýmissa útgerða og annarra fyrirtækja. Á árunum 1963-1974 var Þórarinn forstjóri Bátaábyrgðarfélagsins.
Hann stóð að útgerð Þórunnar VE- með Markúsi bróður sínum og Jóni föður þeirra.
Þau Elín reistu húsið Ásaveg 18 1955 og bjuggu þar til Goss, en fluttust til Hafnarfjarðar, bjuggu á Mosabarði 9.
Þórarinn Gísli lést 1987 og Elín 1998.
Kona Þórarins, (31. desember 1954), var Elín Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 28. júlí 1924, d. 29. ágúst 1998.
Barn þeirra, kjörbarn:
1. Pétur Þórarinsson, f. 10. febrúar 1968.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Gunnar Ármann Hinriksson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.