„Karl Ólafsson (Heiðarbæ)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Viglundur færði Karl Ólafsson á Karl Ólafsson (Heiðarbæ)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 13. júlí 2022 kl. 13:29
Karl Ólafsson fæddist 30. janúar 1915 og lést 13. júlí 1990. Foreldrar hans voru Ólafur Ingileifsson og Sigurjóna Sigurjónsdóttir. Samfeðra Karli voru Sigurgeir, Eggert, Einars á Kap, Guðna á Gjafari og Jóna Guðrún húsfreyja á Víðivöllum.
Karl bjó á Hásteinsvegi 7 en í Reykjavík seinni árin.
Karl var formaður með mótorbátinn Mýrdæling. Hann var lengi félagi í Taflfélagi Vestmannaeyja og Skákmeistari Vestmannaeyja 1960.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Karl:
- Kannar gniðar kaldan völl
- Kalli borinn Óla,
- þó að svæsin sævar föll
- siglum vilji róla.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Karl hræðist víði varla,
- ver Ólafs þann ég geri.
- Gísla Johnsen á sýslar,
- særinn, þó slíti færi.
- Happsamur knarrar kappi
- kann sig á leiðum hranna.
- Tafl kann sá Týrinn afla,
- talfár er greindur halur.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
enn að.