„Jóhann Pétur Ísleifsson“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Jóhann Pétur Ísleifsson''' frá Nýjahúsi, sjómaður fæddist 9. júlí 1908, d. í október 1934.<br> Foreldrar hans voru Ísleifur Jónsson (Nýjahúsi)|Ísleifur Jó...) |
m (Verndaði „Jóhann Pétur Ísleifsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 22. desember 2020 kl. 14:39
Jóhann Pétur Ísleifsson frá Nýjahúsi, sjómaður fæddist 9. júlí 1908, d. í október 1934.
Foreldrar hans voru Ísleifur Jónsson útgerðarmaður, sjómaður, formaður, f. 6. september 1881 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum, d. 20. desember 1932, og kona hans Þórunn Magnúsdóttir húsfreyja, f. 23. maí 1872 í Kálfatjarnarsókn á Reykjanesi, d. 13. mars 1948.
Börn Ísleifs og Þórunnar voru:
1. Jónína Guðrún Ísleifsdóttir, f. 19. febrúar 1902 í Steinum, d. 18. júní 1974.
2. Eyjólfur Magnús Ísleifson skipstjóri, f. 13. september 1905 í Péturshúsi, d. 3. september 1991.
3. Jóhann Pétur Ísleifsson, f. 9. júlí 1908, fórst með v.b. Sigurði Péturssyni frá Siglufirði í október 1934.
4. Steinunn Rósa Ísleifsdóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1912 í Nýjahúsi, d. 13. júlí 1994.
5. Jón Ragnar Ísleifsson sjómaður, f. 16. september 1914 í
Nýjahúsi, fórst með v.b. Sigurði Péturssyni frá Siglufirði í október 1934.
Barn Þórunnar:
6. Ágústa Þorkelsdóttir, síðar húsfreyja í Vetleifsholti og Miðgarði í Holtum f. 19. ágúst 1896, d. 30. júní 1974. Faðir hennar var Þorkell Guðmundsson trésmiður í Bolungarvík, f. 11. september 1870, d. 10. september 1910.
Jóhann Pétur var með foreldrum sínum í æsku og enn 1930.
Hann var sjómaður, var skipverji á v.b. Sigurði Péturssyni frá Siglufirði og fórst með honum í ofsaveðri, sem gekk yfir Norðurland með stórhríð og miklu brimi 27. október 1934 .
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Öldin okkar - Minnisverð tíðindi - 1931-1935. Ritstjórn Gils Guðmundsson. Forlagið Iðunn, Reykjavík 1975.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.