„Þórunn Magnúsdóttir (Nýjahúsi)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Þórunn Magnúsdóttir (Nýjahúsi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 15: | Lína 15: | ||
2. [[Jónína Guðrún Ísleifsdóttir]], f. 19. febrúar 1902 í Steinum, d. 18. júní 1974.
| 2. [[Jónína Guðrún Ísleifsdóttir]], f. 19. febrúar 1902 í Steinum, d. 18. júní 1974.

3. [[Eyjólfur Magnús Ísleifson]] skipstjóri, f. 13. september 1905 í Péturshúsi, d. 3. september 1991.
| 3. [[Eyjólfur Magnús Ísleifson]] skipstjóri, f. 13. september 1905 í Péturshúsi, d. 3. september 1991.

4. [[Jóhann Pétur Ísleifsson]], f. 9. júlí 1908, | 4. [[Jóhann Pétur Ísleifsson]], f. 9. júlí 1908, fórst með v.b. Sigurði Péturssyni frá Siglufirði í október 1934.

5. [[Rósa Ísleifsdóttir (Nýjahúsi)|Steinunn ''Rósa'' Ísleifsdóttir]] húsfreyja, f. 7. júlí 1912 í Nýjahúsi, d. 13. júlí 1994.
| 5. [[Rósa Ísleifsdóttir (Nýjahúsi)|Steinunn ''Rósa'' Ísleifsdóttir]] húsfreyja, f. 7. júlí 1912 í Nýjahúsi, d. 13. júlí 1994.

6. [[Jón Ragnar Ísleifsson]] sjómaður, f. 16. september 1914 í Nýjahúsi, fórst með v.b. Sigurði Péturssyni frá Siglufirði í október 1934. | 6. [[Jón Ragnar Ísleifsson]] sjómaður, f. 16. september 1914 í Nýjahúsi, fórst með v.b. Sigurði Péturssyni frá Siglufirði í október 1934. |
Útgáfa síðunnar 19. desember 2020 kl. 13:44
Þórunn Magnúsdóttir í Nýjahúsi, húsfreyja fæddist 23. maí 1872 í Kálfatjarnarsókn og lést 13. mars 1948.
Foreldrar hennar voru Magnús Bergsteinsson snikkari á Miðengi á Vatnsleysuströnd, Gull., f. 7. febrúar 1837, d. 24. maí 1883, og fyrri kona hans Guðrún Helgadóttir húsfreyja, f. 15. apríl 1848, d. 28. maí 1872.
Móðir Þórunnar lést 5 dögum eftir fæðingu hennar og faðir hennar er hún var 11 ára. Hún var 8 ára með föður sínum og Steinunni Sigríði Magnúsdóttur stjúpu sinni á Helgastöðum í Reykjavík 1880, líklega sú, sem var 18 ára vinnukona á Skeiði í Hvolhreppi 1890, var á Brekkum þar 1896, er hún eignaðist Ágústu.
Þórunn fluttist frá Kirkjulandi í A-Landeyjum til Eyja 1899, var vinnukona í Steinum 1901 og þar var Ísleifur hjú.
Þau Ísleifur giftu sig 1904, dvöldu þá í Steinum, en voru komin í Péturshús 1905. Þau byggðu Nýjahús og bjuggu þar 1906 og síðan.
Ísleifur lést 1932 og Þórunn 1948.
I. Barnsfaðir Þórunnar var Þorkell Guðmundsson trésmiður í Bolungarvík, f. 11. september 1870, d. 10. september 1910. Foreldrar hans voru Guðmundur Þorkelsson bóndi á Brekkum í Hvolhreppi, f. 3. júní 1828, d. 10. janúar 1904 og kona hans Ólöf Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. ágúst 1843, d. 23. október 1924.
Barn þeirra var
1. Ágústa Þorkelsdóttir húsfreyja í Vetleifsholti og Miðgarði í Holtum f. 19. ágúst 1896 á Brekkum í Hvolhreppi, d. 30. júní 1974 í Reykjavík.
II. Maður Þórunnar, (10. janúar 1904), var Ísleifur Jónsson útgerðarmaður, sjómaður, formaður í Nýjahúsi, f. 6. september 1881 í Eyvindarhólasókn u. Eyjafjöllum, d. 20. desember 1932.
Börn þeirra:
2. Jónína Guðrún Ísleifsdóttir, f. 19. febrúar 1902 í Steinum, d. 18. júní 1974.
3. Eyjólfur Magnús Ísleifson skipstjóri, f. 13. september 1905 í Péturshúsi, d. 3. september 1991.
4. Jóhann Pétur Ísleifsson, f. 9. júlí 1908, fórst með v.b. Sigurði Péturssyni frá Siglufirði í október 1934.
5. Steinunn Rósa Ísleifsdóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1912 í Nýjahúsi, d. 13. júlí 1994.
6. Jón Ragnar Ísleifsson sjómaður, f. 16. september 1914 í Nýjahúsi, fórst með v.b. Sigurði Péturssyni frá Siglufirði í október 1934.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.