„Halldóra K. Reyndal (Tungu)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Halldóra Reyndal (Tungu)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
m (Viglundur færði Halldóra Reyndal (Tungu) á Halldóra K. Reyndal (Tungu)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 13. desember 2020 kl. 18:09
Halldóra Guðmunda Kristjánsdóttur Sörensen, síðar Reyndal húsfreyja í Tungu við Heimagötu 4 fæddist 26. ágúst 1877 í Tungu í Skutulsfirði og lést í mars 1922 í Hjörring í Danmörku.
Foreldrar hennar voru Kristján Magnússon bóndi í Tungu í Skutulsfirði, f. 29. október 1844 í Þjóðólfstungu í Bolungarvík, d. 15. febrúar 1914 í Eyjum, og kona hans Halldóra Kristín Halldórsdóttir húsfreyja, f. 14. september 1844 í Gili í Bolungarvík, d. 23. september 1898.
Halldóra var með foreldrum sínum í æsku, í Tungu í Skutulsfirði 1880 og 1890, var þjónustustúlka í Vatnsfirði 1901.
Þau Jóhann fluttu til Eyja 1912, byggðu húsið Tungu við Heimagötu 4 og ráku þar brauðgerð. Þau fluttu til Danmerkur 1921.
Hjónin eignuðust tvö kjörbörn.
Halldóra lést 1922 í Danmörku og Jóhann lést 1971 í Reykjavík.
I. Maður Halldóru Guðmundu Reyndal, (19. maí 1905), var Johan Peter Sörensen, síðar Reyndal, danskur bakarameistari, útgerðarmaður, f. 4. júní 1878 í Árósum, d. 8. september 1971 í Reykjavík. Hann fékk eftirnafni sínu breytt í Reyndal 1918.
Börn þeirra, kjörbörn:
1. Halldóra Valdimarsdóttir Reyndal húsfreyja í Tungu, f. 9. september 1903, d. 12. júní 1942. Maður hennar var Magnús Bergsson.
2. Emma Kristín Reyndal húsfreyja, verslunarmaður á Akranesi, f. 25. janúar 1917, d. 25. október 2001. Maður hennar var Guðni Eyjólfsson.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.