„Jón Guðmundsson (Málmey)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Jón Guðmundsson''' frá Málmey, sjómaður, vörubílstjóri fæddist 17. júlí 1915 Hjalla og lést 26. desember 1994.<br> Foreldrar hans voru Guðmundur Jón...) |
m (Verndaði „Jón Guðmundsson (Málmey)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 27. október 2020 kl. 17:20
Jón Guðmundsson frá Málmey, sjómaður, vörubílstjóri fæddist 17. júlí 1915 Hjalla og lést 26. desember 1994.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson verkamaður, sjómaður, f. 7. febrúar 1875 á Stokkseyri, d. 25. nóvember 1953, og kona hans Kristbjörg Einarsdóttir húsfreyja, f. 2. desember 1886 í Málmey í Skagafirði, d. 27. nóvember 1967.
Jón var með foreldrum sínum í æsku, en var í Skála u. Eyjafjöllum 1930.
Hann var sjómaður um skeið, lenti í slysi og fatlaðist frá því starfi.
Hann fluttist til Selfoss, var mjólkurbílstjóri hjá Mjólkurbúi Flóamanna lengi.
Þau Brunhild giftu sig 1950, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Selfossi.
Jón lést 1994 og Brunhild 2009.
I. Kona Jóns, (20. maí 1950), var Brunhild Scheel Pálsdóttir (líka nefnd Brunhilde Guðmundsson), f. 22. september 1927 í Lübeck í Þýskalandi, d. 11. september 2009. Foreldrar hennar voru Paul Otto Herman Scheel, f. 22. mars 1883, d. í apríl 1963, járnbrautarstarfsmaður í Lübeck, og kona hans Henriette Caroline Milenz Scheel, ættuð frá Prússlandi, f. 12. september 1887, d. 1969, húsfreyja.
Börn þeirra:
1. Guðmundur Paul Jónsson bakarameistari á Egilsstöðum og Blönduósi, skjalavörður á Blönduósi, f. 11. september 1950. Fyrrum kona hans Rannveig Sigurðardóttir. Fyrrum kona hans Helga Sólveig Jóhannesdóttir.
2. Kolbrún Jónsdóttir húsfreyja í Niebüll í Þýskalandi, f. 16. júní 1954. Fyrri maður hennar Holgeir Petersen, látinn. Maður hennar Hans Anton Heinesen, látinn.
3. Olgeir Jens Jónsson símsmiður á Selfossi, f. 25. ágúst 1958. Fyrrum kona hans Sigríður Guðbjörg Kragh. Fyrrum kona hans Sigríður Sesselja Gunnlaugsdóttir. Fyrrum kona hans Bára Kristbjörg Gísladóttir.
4. Birgir Jónsson, f. 27. júí 1960. Fyrrum sambúðarkona hans Ása Gréta Einarsdóttir. Fyrrum kona hans Anna Gísladóttir. Kona hans Friðbjörg Dröfn Magnúsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðmundur Paul.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Morgunblaðið. Minning.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.