„Sigurður Einarsson (sjómaður)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Sigurður Einarsson''' frá Vorsabæ í A-Landeyjum, verkamaður, sjómaður, kyndari fæddist 29. nóvember 1904 og drukknaði í Bretlandi 6. febrúar 1943. <br> Foreldrar hans v...) |
m (Verndaði „Sigurður Einarsson (sjómaður)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 25. nóvember 2019 kl. 15:29
Sigurður Einarsson frá Vorsabæ í A-Landeyjum, verkamaður, sjómaður, kyndari fæddist 29. nóvember 1904 og drukknaði í Bretlandi 6. febrúar 1943.
Foreldrar hans voru Einar Jóhannsson í Skála, verkamaður, f. 24. júní 1875, d. 28. desember 1930, og kona hans Anna Einarsdóttir húsfreyja, f. 26. apríl 1872, d. 6. febrúar 1939.
Fósturforeldrar Sigurðar voru föðurforeldrar hans Jóhann Jónsson bóndi í Vorsabæ, f, 24. október 1843, d. 1. nóvember 1919 í Vorsabæ, og kona hans Sigríður Oddsdóttir frá Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu, síðar í Litla-Hlaðbæ, f. 1. júlí 1848, d. 10. nóvember 1922.
Sigurður var hjá fósturforeldrum sínum í Vorsabæ, en fluttist þaðan til Eyja 1921.
Hann vann í fyrstu í frystihúsi Óskars Halldórssonar, en var síðan sjómaður, var kyndari á Sæfellinu og í fiskflutningum til Bretlands á Stríðsárunum og drukknaði í höfninni í Fleetwood 1943.
Þau Oddný Ólafía giftu sig 1928, eignuðust þrjú börn, en misstu eitt þeirra nýfætt.
Þau bjuggu á Borgarhóli, Kirkjuvegi 11 1930, á Goðafelli, Hvítingavegi 3 1934 með börnunum Georg og Agnari Reyni og á Brekastíg 19 1940.
I. Kona Sigurðar, (18. maí 1928), var Oddný Ólafía Eyjólfsdóttir frá Haraldsstöðum í Seyðisfirði, húsfreyja, f. 18. febrúar 1904 á Vestdalseyri þar, d. 18. september 1970.
Börn þeirra:
1. Georg Sigurðsson verkamaður, f. 23. janúar 1930 á Borgarhóli. Kona hans Ása Valtýsdóttir.
2. Eyrún Anna Sigurðardóttir, f. 21. júní 1931 á Borgarhóli, d. 9. júlí 1931.
3. Agnar Reynir Sigurðsson verkamaður, f. 5. ágúst 1933 á Goðafelli, d. 5. desember 1999. Kona hans, skildu, Eyrún Auðunsdóttir.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.