„Binni í Gröf“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 1: | Lína 1: | ||
[[Mynd:Binni2.jpg|thumb|300px|Binni í Gröf]] | [[Mynd:Binni2.jpg|thumb|300px|Binni í Gröf]] | ||
'''Benóný Friðriksson''' var fæddur 7. janúar 1904 og hann lést 12. maí 1972. Benóný var betur þekktur sem '''Binni í Gröf''' og var hann landsfrægur aflamaður. Hann fæddist í [[Um Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjum]] og var sonur formannsins [[Friðrik Benónýsson (Gröf)|Friðriks Benónýssonar]] og [[Oddný Benediktsdóttir (Gröf)|Oddnýjar Benediktsdóttur]]. Eiginkona Binna var [[Katrín Sigurðardóttir ( | '''Benóný Friðriksson''' var fæddur 7. janúar 1904 og hann lést 12. maí 1972. Benóný var betur þekktur sem '''Binni í Gröf''' og var hann landsfrægur aflamaður. Hann fæddist í [[Um Vestmannaeyjar|Vestmannaeyjum]] og var sonur formannsins [[Friðrik Benónýsson (Gröf)|Friðriks Benónýssonar]] og [[Oddný Benediktsdóttir (Gröf)|Oddnýjar Benediktsdóttur]]. Eiginkona Binna var [[Katrín Sigurðardóttir (Sóleyjarhlíð)|Sigríður Katrín Sigurðardóttir]] og áttu þau saman 7 börn. | ||
== Sjómennska == | == Sjómennska == | ||
Lína 35: | Lína 35: | ||
==Fjölskylda== | ==Fjölskylda== | ||
Eiginkona Binna var [[Katrín Sigurðardóttir ( | Eiginkona Binna var [[Katrín Sigurðardóttir (Sóleyjarhlíð)|Sigríður Katrín Sigurðardóttir]] (Fædd á Stórólfshvoli í Hvolhreppi, Rang. 26. maí 1909 og látin 28. júní 1979 frá Þinghól í Hvolhreppi) og áttu þau saman 7 börn. | ||
* [[Sævar Benónýsson]] 1931 - 1982 | * [[Sævar Benónýsson]] 1931 - 1982 | ||
:Skipstjóri, síðast bús. í Vestmannaeyjum. | :Skipstjóri, síðast bús. í Vestmannaeyjum. |
Útgáfa síðunnar 10. júlí 2019 kl. 17:57
![](/images/thumb/a/af/Binni2.jpg/300px-Binni2.jpg)
Benóný Friðriksson var fæddur 7. janúar 1904 og hann lést 12. maí 1972. Benóný var betur þekktur sem Binni í Gröf og var hann landsfrægur aflamaður. Hann fæddist í Vestmannaeyjum og var sonur formannsins Friðriks Benónýssonar og Oddnýjar Benediktsdóttur. Eiginkona Binna var Sigríður Katrín Sigurðardóttir og áttu þau saman 7 börn.
Sjómennska
Alveg frá upphafi beindist hugur Binna að sjónum. Ekki var hann gamall þegar hann hóf að dorga í höfninni og eyddi hann góðum tíma af æsku sinni niðri á höfn. Ekki var hann fermdur þegar hann hóf að róa. Það var á smáferju hjá Jakobi Tranberg og kom strax í ljós mikill áhugi og fiskisæld. Ásamt þremur vinum sínum hóf Binni formennsku á sexæring 15 ára gamall. Fiskuðu félagarnir mikið undir styrkri stjórn Binna.
Binni gerðist með afbrigðum góður sjó- og aflamaður, einhver mesti sem við Vestmannaeyjar hefur fiskað. Binni reri fyrstu vertíðir sínar á vélbát á m/b Nansen VE 102, 1920. Vélamaður þar 1921-1924 og var hann formaður á bátnum í forföllum Jóhanns á Brekku. Árið 1926 var honum boðið að taka formennsku á vélbátnum m/b Gúllu. Þar var hann starfandi sjö vertíðir, síðan tók hann við bátnum Newcastle, og var svo með vélbátana m/b Gottu, Maunt Heklu, m/b Gulltopp, e/s Sævar VE 102,(var áður varðskip og hét Þór) og m/b Andvara. Eftir það keypti hann skipið m/b Gullborg 1954-1970 (ásamt Einari Sigurðssyni frá Heiði) og varð landsþekktur fyrir formennsku sína á þeim bát. Það var hans happaskip.
Binni varð aflakóngur í Vestmannaeyjum árið 1954 og hélt þeim titli samfellt í 6 vertíðir og fékk titilinn samtals sjö sinnum. Nokkrum sinnum varð hann hæstur yfir landið.
![](/images/thumb/f/ff/AHOFNGU4.jpg/300px-AHOFNGU4.jpg)
Benóný var ávallt með úrvals mannskap enda samrýmdist hvers konar seinagangur og stirðleiki ekki skapi skipstjórans.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Binna:
- Hræðist aldrei hroða sjá
- hraustur Grafar Binni.
- Þundur fiskinn þykir sá,
- það skal haft í minni.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Binni með sjómanns sinni,
- svalur frá Gröf er talinn,
- Friðriks arfi, þó iðan
- ill vilji þiljur fylla,
- Gullborgu létt á lullar
- leiður ei þétt til veiða.
- Æðstan kóng afla hæstan
- Ísalands hann ég lýsi.
Áhugamál og önnur afrek
Á yngri árum var Binni fimur með boltann, hann var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Týs og keppti með þeim en hann var einnig í fremstu röð í fimleikum. Önnur hreyfing var Binna hugleikin og eyddi hann góðum tíma í lundaveiði þó að tækifærin kæmu sjaldan. Hann hafði dálæti á vísum og kunni ógrynni af þeim ásamt því að kveðast á við félaga.
Binni var sæmdur fálkaorðunni árið 1971 fyrir störf sín.
Fjölskylda
Eiginkona Binna var Sigríður Katrín Sigurðardóttir (Fædd á Stórólfshvoli í Hvolhreppi, Rang. 26. maí 1909 og látin 28. júní 1979 frá Þinghól í Hvolhreppi) og áttu þau saman 7 börn.
- Sævar Benónýsson 1931 - 1982
- Skipstjóri, síðast bús. í Vestmannaeyjum.
- Jóna Sigríður Benónýsdóttir 1935 - 1984
- Síðast bús. í Keflavík.
- Sjöfn Kolbrún Benónýsdóttir 1937
- Oddný Jóhanna Benónýsdóttir 1939 - 1995
- Húsfreyja í Eyvindarmúla, Fljótshlíðarhr., Rang.
- Friðrik Gissur Benónýsson 1941
- Benóný Benónýsson 1947
- Sigurður Grétar Benónýsson 1950
- Svanhildur Guðrún Benónýsdóttir 1951
Myndir
Heimildir
- Benóný Friðriksson. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1972, bls. 46.
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.
- Íslendingabók. [1]
- Viðbætur við heimildir: Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum