„Sigfús Guðmundsson (skipstjóri)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
Ekkert breytingarágrip |
m (Viglundur færði Sigfús Guðmundsson á Sigfús Guðmundsson (skipstjóri)) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 27. febrúar 2019 kl. 21:00
Sigfús Guðmundsson fæddist 28. júní 1912 og lést 10. nóvember 1995. Hann bjó á Brimhólabraut 10 en bjó síðustu ár sín á Hraunbúðum.
Sigfús var formaður með mótorbátinn Ísleif.
Óskar Kárason samdi formannavísu um Sigfús:
- Heldur fær um súðar sveif
- sonur Guðmunds Fúsi,
- á æginn færir Ísaleif
- aldan stafn þó knúsi.
Óskar samdi seinna aðra vísu um hann:
- Björg þétt með fiski fjörgar
- frískur Einar ónízkur,
- son Guðmunds siglu-konu,
- séður með afla hleður.
- Heldur sá hafs á keldur,
- hríð þó að rjúki víða,
- hól með úr skipaskóla
- skipstjórinn fór með lipur.
Myndir
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.