„Kjartan Örn Sigurbjörnsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
mEkkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:


{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Guðlaugur Gíslason: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
* [[Guðlaugur Gíslason]]: ''Eyjar gegnum aldirnar''. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.
}}
}}


[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Fólk]]
[[Flokkur:Prestar]]
[[Flokkur:Prestar]]

Útgáfa síðunnar 7. júlí 2006 kl. 18:36

Kjartan Örn Sigurbjörnsson var prestur í Vestmannaeyjum á árunum 1975 til 1990. Kjartan er fæddur 23. október 1948 á Siglufirði. Foreldrar hans eru Sigurbjörn, verkamaður á Siglufirði, Sveinsson, Sveinssonar og Guðrún, sjúkraþjálfari, Þorbjörnsdóttir, sjómanns í Vestmannaeyjum, Arnbjörnssonar.

Kjartan er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1968 og cand. theol. frá Háskóla Íslands árið 1974. Settur kennari við Gagnfræðaskólann á Akranesi veturinn 1974-1975. Settur annar sóknarprestur í Vestmannaeyjaprestakalli 1975 og skipaður sóknarprestur 23. júní 1976 og gegndi embættinu einn upp frá því. Kjartan er talinn traustur embættismaður og kennimaður góður. Kjartan er nú sérþjónustuprestur í Reykjavík. Kona hans er Katrín Þórlindsdóttir, skipstjóra á Eskifirði, Magnússonar.



Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.