„Regína Stefánsdóttir (Einarshöfn)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðný ''Regína'' Stefánsdóttir''' verkakona fæddist 5. desember 1905 á Norðfirði og lést 24. júlí 1986.<br> Foreldrar hennar voru Stefán Bjarnason bóndi og sjómaður...) |
m (Verndaði „Regína Stefánsdóttir (Einarshöfn)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 2. nóvember 2016 kl. 19:31
Guðný Regína Stefánsdóttir verkakona fæddist 5. desember 1905 á Norðfirði og lést 24. júlí 1986.
Foreldrar hennar voru Stefán Bjarnason bóndi og sjómaður í Seldal og á Grund í Norðfirði, f. 9. janúar 1853, d. 3. febrúar 1915, og kona hans Guðbjörg Matthíasdóttir húsfreyja, f. 11. nóvember 1865, d. 11. janúar 1947.
Regína var með foreldrum sínum á Grund í Norðfirði 1910, var á Helgustöðum í Reyðarfirði 1920.
Hún fluttist frá Norðfirði til Eyja 1924, var lausakona (þ.e. án fastrar ráðningar til vinnu) í Einarshöfn 1925, á Heiðarhól 1930, á Ingólfshvoli 1931 og í Varmadal 1934.
Regína fluttist úr Eyjum til Stokkseyrar, var þar í Pálsbæ og Baldursheimi, en bjó að síðustu í Reykjavík.
Barnsfaðir Regínu að tveim börnum var Páll Þórðarson frá Klöpp á Stokkseyri, verkamaður í Varmadal, síðar kyndari á Akureyri, f. 3. október 1903, d. 19. maí 1992.
Börn þeirra voru:
1. Guðjón Högni Pálsson sjómaður, farmaður, hermaður, verslunarmaður, f. 13. desember 1925 í Einarshöfn, d. 15. nóvember 2001.
2. Páll Hörður Pálsson skipstjóri, f. 17. janúar 1931 á Ingólfshvoli, d. 7. maí 1990.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.