„Elsa Dóróthea Ólafía Guðmundsdóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Elsa Dóróthea Ólafía Guðmundsdóttir''' frá Seyðisfirði, bústýra í Vinaminni fæddist 28. apríl 1889 á Seyðisfirði og lést 4. desember 1918.<br> Foreldrar henna...) |
m (Verndaði „Elsa Dóróthea Ólafía Guðmundsdóttir“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 20. febrúar 2016 kl. 15:06
Elsa Dóróthea Ólafía Guðmundsdóttir frá Seyðisfirði, bústýra í Vinaminni fæddist 28. apríl 1889 á Seyðisfirði og lést 4. desember 1918.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson frá Miðhúsum, sjómaður og útgerðarmaður á Seyðisfirði, f. 12. apríl 1856, d. 2. ágúst 1936, og kona hans Oddný Ólafsdóttir frá London, f. 6. ágúst 1859 í Steinasókn og lést 23. maí 1926.
Elsa var með foreldrum sínum á Kvennabrekku á Seyðisfirði 1890, í Guðmundarhúsi þar 1901.
Hún fluttist frá Seyðisfirði til Eyja 1910 og var þá bústýra í Vinaminni hjá Benedikt Friðrikssyni skósmíðameistara. Þau giftu sig 1911 og bjuggu í Vinaminni til 1917, en voru komin á Þingvelli síðla árs 1917.
Elsa ól Alfreð Alexander í Vinaminni 1911 og Ottó Berent Elías á Þingvöllum 1917. Hún lést 1918.
Maður Elsu, (4. nóvember 1911), var Benedikt Friðriksson skósmíðameistari, f. 26. febrúar 1887, d. 11. febrúar 1941.
Börn þeirra voru:
1. Alfreð Alexander Benediktsson sjómaður í Reykjavík, f. 14. desember 1911 í Vinaminni, d. 9. nóvember 1946.
2. Ottó Berent Elías Benediktsson bakari, síðast í Reykjavík, f. 2. nóvember 1917 á Þingvöllum, d. 31. maí 1990.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.