„Þórunn Sigurðardóttir (Kalmanstjörn)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Þórunn Sigurðardóttir''' frá London, húsfreyja fæddist 14. janúar 1889 í Jónshúsi og lést 22. nóvember 1948.<br> Foreldrar hennar voru [[Sigurður Sigurðsson ...)
 
m (Verndaði „Þórunn Sigurðardóttir (Kalmanstjörn)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 23. nóvember 2015 kl. 20:11

Þórunn Sigurðardóttir frá London, húsfreyja fæddist 14. janúar 1889 í Jónshúsi og lést 22. nóvember 1948.
Foreldrar hennar voru Sigurður Sigurðsson bóndi, verkamaður, f. 26. febrúar 1860, d. 6. apríl 1941, og kona hans Guðríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 4. október 1860, d. 1. nóvember 1943.

Foreldrar Þórunnar voru ógift í Jónshúsi við fæðingu hennar. Hún var tökubarn hjá Unu Guðmundsdóttur og Ólafi Magnússyni í London á 1. árinu 1889, hjá Vigdísi Árnadóttur og Ögmundi Ögmundssyni í Landakoti 1890, komin aftur að London 1891. Þar var hún enn 1901, fósturdóttir þeirra. Hún var vinnukona hjá Magnúsínu Guðmundsdóttur og Magnúsi Ísleifssyni þar 1906, en var á Strönd, er hún eignaðist Ólaf Vestmann í desember 1906.
Þórunn var með foreldrum sínum í Kristjánshúsi á Eskifirði 1910. Hún giftist Sveini Ottó Sigurðssyni skipstjóra á Seyðisfirði. Þau bjuggu í Garðhúsi á Seyðisfirði 1920 með tvær dætur sínar Sveinlaugu Halldóru og Karólínu Ágústu.
Sveinn Ottó drukknaði 1925.
Þórunn fluttist til Eyja, var fiskvinnslukona með börnin 3 á Kalmanstjörn, Vestmannabraut 2 1930.
Hún var húsfreyja á heimili Karólínu Ágústu og Halldórs Jónssonar manns hennar í Skálholti við Landagötu 22 1940.
Þórunn bjó að síðustu hjá þeim á Kalmannstjörn. Hún lést 1948.

I. Barnsfaðir Þórunnar var Guðmundur Guðmundsson Vestmann, síðar bátsformaður á Fáskrúðsfirði, f. 3. febrúar 1886, d. 3. júní 1982.
Barnið var
1. Ólafur Guðmundsson Vestmann, f. 25. desmber 1906 á Strönd, d. 15. apríl 1970.

II. Maður Þórunnar var Sveinn Ottó Sigurðsson bátsformaður frá Seyðisfirði, f. 18. október 1891, drukknaði 31. júlí 1925. Börn þeirra:
2. Sveinlaug Halldóra Sveinsdóttir, síðast í Sandgerði, f. 8. mars 1918, d. 29. janúar 1992.
3. Karólína Ágústa Sveinsdóttir húsfreyja, f. 19. nóvember 1919, d. 26. júní 1984.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.