„Halldór Jónsson (Helgabæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 20: Lína 20:
*Prestþjónustubækur.
*Prestþjónustubækur.
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Tómthúsmenn]]
[[Flokkur: Tómthúsmenn]]
[[Flokkur: Sjómenn]]
[[Flokkur: Sjómenn]]

Útgáfa síðunnar 16. ágúst 2015 kl. 18:42

Halldór Jónsson tómthúsmaður, sjómaður í Helgabæ fæddist 14. desember 1832 í Lágu-Kotey í Meðallandi og drukknaði í apríl 1867.
Foreldrar hans voru Jón Jónsson bóndi, síðast á Grímsstöðum í Meðallandi, f. 22. október 1796 á Grímsstöðum, d. 19. september 1887 þar, og fyrri kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 1801 á Brunnum í Suðursveit, d. 29. júlí 1863 í Skurðbæ í Meðallandi.

Halldór var í frumbernsku með foreldrum sínum, var fósturbarn í Langholti í Meðallandi 1834-1835, í Skurðbæ 1835-1836 á Undirhrauni þar 1836-1848, á Syðri-Steinsmýri þar 1848-1853.
Hann var vinnumaður í Langholti 1856-1858, húsmaður þar 1858-1860.
Þau Jóhanna komu frá Langholti að Helgahjalli 1860 með barnið Jóhann á 3. árinu. Þau voru tómthúsfólk í Helgabæ á því ári, - (Helgabær og Helgahjallur voru hvortveggja tómthús), - og þeim fæddist Gunnar í september sama ár, en misstu hann á fyrsta ári.
Guðrúnu eignuðust þau 1861.
Halldór missti Jóhönnu 7. mars 1864 eftir barneign 10. janúar. Barnið dó 11. mars.
Hann varð að koma börnunum fyrir á heimaslóð í Meðallandi.
Halldór var háseti hjá Magnúsi Oddssyni á þilskipinu Helgu, sem týndist í apríl 1867.

I. Kona hans, (17. júlí 1857), var Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1833, d. 7. mars 1864.
Börn þeirra hér:
1. Jóhann Halldórsson, f. 4. nóvember 1857 í Langholti í Meðallandi. Hann var með foreldrum sínum í Langholti 1860, fór með þeim til Eyja á því ári, fór 7 ára í Meðalland 1864, var tökubarn í Langholt þar 1864-1869, á sveit á Syðri-Steinsmýri 1869-1871. Þá fór hann að Helliskoti. Hann var vinnumaður á Minni-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd 1880.
2. Gunnar Halldórsson, f. 6. september 1860, d. 5. júlí 1861 „af kyrkingarveiki“.
3. Guðrún Halldórsdóttir verkakona, f. 14. nóvember 1861, d. 26. júlí 1933.
4. Jón Halldórsson, f. 10. janúar 1864, d. 11. mars 1864 „af almennri ungbarnaveiki“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.