„Guðrún Rafnsdóttir (Stakkagerði-vestra)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Guðrún Rafnsdóttir (Stakkagerði-vestra)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 16: | Lína 16: | ||
*Manntöl. | *Manntöl. | ||
*Íslendingabók.is.}} | *Íslendingabók.is.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Húsfreyjur]] | [[Flokkur: Húsfreyjur]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 20. öld]] | ||
[[Flokkur: Fólk dáið á 21. öld]] | [[Flokkur: Fólk dáið á 21. öld]] | ||
[[Flokkur: Íbúar í Stakkagerði-Vestra]] | [[Flokkur: Íbúar í Stakkagerði-Vestra]] |
Útgáfa síðunnar 16. ágúst 2015 kl. 17:56
Guðrún Rafnsdóttir húsfreyja í Vestra-Stakkagerði fæddist 22. mars 1910 á Grundarfirði og lést 25. október 2004.
Foreldrar hennar voru Rafn Júlíus Símonarson frá Norðfirði, sjómaður og útgerðarmaður þar, síðar verslunarmaður á Litlu-Löndum í Eyjum, f. 1. júlí 1866, d. 9. júlí 1933 og kona hans Guðrún Gísladóttir húsfreyja og saumakona í Vindheimi í Norðfirði 1901, f. 27. júní 1872, d. 5. janúar 1912.
Guðrún var systir Helgu Rafnsdóttur konu Ísleifs Högnasonar, og Jóns Rafnssonar verkalýðsleiðtoga.
Maður (skildu) Guðrúnar Rafnsdóttur var Þórarinn Bernótusson frá Vestra-Stakkagerði, f. 20. maí 1908, d. 10. ágúst 1943.
Guðrún fluttist til Eyja 1920. Hún var húsfreyja í Vestra-Stakkagerði 1930. Hún bjó síðast í Reykjavík.
Barn þeirra Þórarins og Guðrúnar var
Hilmar Bernótus Þórarinsson rafvirkjameistari og framkvæmdastjóri í Garðabæ, f. 8. desember 1929, d. 14. júní 1992. Hann ólst upp hjá frænku sinni (ömmusystur) Guðbjörgu Þórðardóttur húsfreyju á Fífilgötu 3 og manni hennar Árna hafnsögumanni Þórarinssyni.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Árni Árnason.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Garður.is.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.