„Magnús Þórðarson (assistent)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Magnús Þórðarson''' búðarþjónn fæddist (1745).<br> Foreldrar hans voru Þórður Erlendsson bóndi á Hvoli í Mýrdal, síðar bóndi og hreppstjóri í Seli í A-Landeyj...) |
m (Verndaði „Magnús Þórðarson (assistent)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 16. júní 2015 kl. 12:27
Magnús Þórðarson búðarþjónn fæddist (1745).
Foreldrar hans voru Þórður Erlendsson bóndi á Hvoli í Mýrdal, síðar bóndi og hreppstjóri í Seli í A-Landeyjum, f. 1713, á lífi 1771, og kona hans Petrónella Bjarnadóttir húsfreyja, f. 1725, á lífi 1767.
Bróðir Magnúsar var Bjarni Þórðarson tómthúsmaður á Löndum f. 1765 í Seli í A-Landeyjum, d. 19. desember 1836.
Magnús er nefndur eitt af börnum þessarra foreldra í Sýslumannaæfum, „Magnús assistent í Vestmannaeyjum“.
Hann var verslunarþjónn í Eyjum, en frekari vitneskja um hann er ekki í hendi.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Sýslumannaæfir IV, bls. 632. Bogi Benediktsson.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.