„Helga Jónsdóttir (mormóni)“: Munur á milli breytinga
Ekkert breytingarágrip |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 17: | Lína 17: | ||
*Prestþjónustubækur. | *Prestþjónustubækur. | ||
*[[Saga Vestmannaeyja]]. [[Sigfús M. Johnsen]]. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.}} | *[[Saga Vestmannaeyja]]. [[Sigfús M. Johnsen]]. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.}} | ||
{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | |||
[[Flokkur: Húsfreyjur]] | [[Flokkur: Húsfreyjur]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] |
Útgáfa síðunnar 16. ágúst 2015 kl. 20:16
Helga Jónsdóttir vinnukona og mormóni fæddist 1813 í Eystri-Klasbarða í V-Landeyjum og lést í Vesturheimi.
Foreldrar hennar voru Jón Halfdanarson frá Eystri-Klasbarða f. 1772, d. 1814, og kona hans Kristín Þorleifsdóttir, f. 27. júní 1782, d. 3. júní 1833.
Helga var systir
1. Gísla Jónssonar bónda og hreppstjóra í Presthúsum, f. 11. apríl 1803, d. 28. ágúst 1861.
2. Helga Jónssonar bónda í Kornhól, f. 6. júlí 1806, d. 17. júní 1864. Konur hans voru Þuríður Björnsdóttir húsfreyja og Sigríður Bjarnadóttir húsfreyja.
2. Kristínar Jónsdóttur húsfreyju á Gjábakka, f. 11. september 1811, d. 14. október 1883, konu Eiríks Hanssonar.
Helga var með móður sinni og stjúpa í bernsku, var líklega 20 ára vinnukona í Gulrási í A-Landeyjum 1835.
Hún var vinnukona í Frydendal 1840, í Gvendarhúsi 1845-1851, var 37 ára „sjáfrar sín“ í Kastala 1852.
Helga fór áleiðis til Utah 1854 í fylgd Samúels Bjarnasonar og Margrétar Gísladóttur 1854.
Maður Helgu var Þórður Diðriksson múrsteinshleðslumaður, trúarleiðtogi í Utah, f. 25. mars 1828, d. 9. september 1894. Hún var ein þriggja eiginkvenna hans. Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.