„Ingvar Sigurðsson (Gjábakka)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Ingvar Sigurðsson''' vinnumaður á Gjábakka fæddist 20. júlí 1875 á Efra-Hvoli í Hvolhreppi og lést 27. október 1896 á Gjábakka.<br> Foreldrar hans voru S...) |
m (Verndaði „Ingvar Sigurðsson (Gjábakka)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 24. apríl 2015 kl. 15:24
Ingvar Sigurðsson vinnumaður á Gjábakka fæddist 20. júlí 1875 á Efra-Hvoli í Hvolhreppi og lést 27. október 1896 á Gjábakka.
Foreldrar hans voru Sigurður Gunnlaugsson bóndi á Efra-Hvoli í Hvolhreppi, skírður 18. apríl 1841, d. 25. febrúar 1892, og kona hans Ingibjörg Árnadóttir húsfreyja, f. 25. október 1840, d. 25. september 1930.
Ingibjörg móðir Ingvars var dóttir Árna Pálssonar bónda í Rimakoti og konu hans Inveldar Ormsdóttur húsfreyju. Ætt Ingvars var víðfeðm í Eyjum.
Móðursystkini hans voru mörg þar. Sjá þau á síðu Bjargar Árnadóttur á Vilborgarstöðum.
Ingvar var með foreldrum sínum í æsku, var léttadrengur í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum 1890.
Hann fluttist til Eyja 1896, vinnumaður á Gjábakka, og lést síðla árs.
Ingvar var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Árni Árnason
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.