Ingvar Sigurðsson (Gjábakka)
Ingvar Sigurðsson vinnumaður á Gjábakka fæddist 20. júlí 1875 á Efra-Hvoli í Hvolhreppi og lést 27. október 1896 á Gjábakka.
Foreldrar hans voru Sigurður Gunnlaugsson bóndi á Efra-Hvoli í Hvolhreppi, skírður 18. apríl 1841, d. 25. febrúar 1892, og kona hans Ingibjörg Árnadóttir húsfreyja, f. 25. október 1840, d. 25. september 1930.
Bróðir Ingvars var
1. Páll Sigurðsson bifreiðastjóri í Laufholti.
2. Gunnlaugur Sigurðsson formaður á Gjábakka, f. 28. september 1883, d. 20. apríl 1965.
Ingibjörg móðir Ingvars var dóttir Árna Pálssonar bónda í Rimakoti og konu hans Inveldar Ormsdóttur húsfreyju. Ætt Ingvars var víðfeðm í Eyjum.
Móðursystkini hans voru mörg þar. Sjá þau á síðu Bjargar Árnadóttur á Vilborgarstöðum.
Ingvar var með foreldrum sínum í æsku, var léttadrengur í Litlu-Hildisey í A-Landeyjum 1890.
Hann fluttist til Eyja 1896, vinnumaður á Gjábakka, og lést síðla árs.
Ingvar var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Árni Árnason
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Íslendingabók.is.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.