„Þór Sigfússon“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 17: Lína 17:
Hann hefur einnig skrifað greinar og bækur um hagfræðileg efni og stjórnmál og ritstýrt slíkum. <br>
Hann hefur einnig skrifað greinar og bækur um hagfræðileg efni og stjórnmál og ritstýrt slíkum. <br>
Þór var formaður Heimdallar, framkvæmdastjóri Sambands ungra Sjálfstæðismanna 1986-88.<br>  
Þór var formaður Heimdallar, framkvæmdastjóri Sambands ungra Sjálfstæðismanna 1986-88.<br>  
 
Hann var sæmdur hinni íslensku fálkaorðu 17. júní 2024.
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* ''Upphaflegu greinina skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson''
* ''Upphaflegu greinina skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson''

Núverandi breyting frá og með 19. júní 2024 kl. 10:58

Þór Sigfússon hagfræðingur, forstjóri, fæddist 2. nóvember 1964 í Eyjum.
Foreldrar hans eru Sigfús Jörundur Árnason Johnsen, f. 1930, d. 2006 og k.h. Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 1930.

Kona Þórs er Halldóra Vífilsdóttir arkitekt, forstjóri Framkvæmdasýslu Ríkisins, f. 6. júlí 1968.
Foreldrar: Vífill Oddsson verkfræðingur, f. 1937 og k.h. Katrín Gústafsdóttir húsmóðir og forstöðumaður ræstinga á Ríkisspítulum, f. 1938.
Börn þeirra eru:
1. Oddur Ísar Þórsson, f. 15. júlí 2000.
2. Kristína Katrín Þórsdóttir, f. 24. jan. 2004.

Nám og störf

Þór varð stúdent 1985, lauk BA-prófi í hagfræði við University of N-Carolina í Bandaríkjunum 1990 og masters-prófi frá sama skóla 1991.
Hann varði doktorsrit sitt "The Strength and Empowerment of Weak ties in International New Ventures" við Háskóla Íslands 27. apríl 2012.
Þór var ráðgjafi fjármálaráðherra 1993-98, aðstoðarframkvæmdastjóri Norræna fjárfestingabankans 1998, framkvæmdastjóri Verzlunarráðs (síðar Viðskiptaráðs) til 2005. Forstjóri Sjóvár var hann frá 1. des. 2005 til 2009.
Hann hafði forystu um stofnun Sjávarklasans h.f. í Reykjavík 2011 og er forstjóri hans.

Þór hefur staðið að bókaútgáfu. Gaf hann m.a. út ljósprentaða gerð Sögu Vestmannaeyja eftir Sigfús M. Johnsen með viðaukum 1989.
Hann hefur einnig skrifað greinar og bækur um hagfræðileg efni og stjórnmál og ritstýrt slíkum.
Þór var formaður Heimdallar, framkvæmdastjóri Sambands ungra Sjálfstæðismanna 1986-88.
Hann var sæmdur hinni íslensku fálkaorðu 17. júní 2024.


Heimildir

  • Upphaflegu greinina skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson
  • Pers.