„Ólafur Guðbrandsson (Steinsstöðum)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Ólafur Guðbrandsson (Steinsstöðum)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |
||
Lína 13: | Lína 13: | ||
*Íslendingabók.is. | *Íslendingabók.is. | ||
*Prestþjónustubækur. | *Prestþjónustubækur. | ||
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}} | *Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}{{Æviskrár Víglundar Þórs}} | ||
[[Flokkur: Vinnumenn]] | [[Flokkur: Vinnumenn]] | ||
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] | [[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]] |
Núverandi breyting frá og með 18. ágúst 2015 kl. 21:31
Ólafur Guðbrandsson vinnumaður á Steinsstöðum fæddist 1835 í Mýrdal og drukknaði 29. apríl 1858.
Foreldrar hans voru Guðbrandur Jónsson bóndi í Pétursey og á Syðsta-Fossi í Mýrdal, f. 1802, d. 21. maí 1840, og kona hans Gróa Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 1798, d. 23. september 1843.
Ólafur var með foreldrum sínum í æsku, var niðursetningur víða í Mýrdal til 1851, Reynisholti, á Skammadalshóli, á Hvoli, í Sólheimahjáleigu, síðast í
Steig.
Hann var vinnudrengur á Mýrum í Álftaveri 1851-1853, fór þá að Kaldrananesi í Mýrdal, síðan að Ytri-Skógum u. Eyjafjöllum.
Hann fluttist að Draumbæ frá Ytri-Skógum 1855, var þar léttadrengur á því ári, vinnupiltur þar 1856.
Hann var vinnumaður á Steinsstöðum 1857 og 1858.
Ólafur drukknaði „ á smáferju á siglingu“ út af Klettsnefi 1858.
Hann var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.