„Árni Magnússon (Fredensbolig)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Árni Magnússon''' vinnupiltur í Fredensbolig fæddist 1. október 1833 í Vatnahjáleigu í A-Landeyjum og lést 28. ágúst 1848.<br> Foreldrar hans voru Magnús Guðlaugs...) |
m (Verndaði „Árni Magnússon (Fredensbolig)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. mars 2015 kl. 18:06
Árni Magnússon vinnupiltur í Fredensbolig fæddist 1. október 1833 í Vatnahjáleigu í A-Landeyjum og lést 28. ágúst 1848.
Foreldrar hans voru Magnús Guðlaugsson bóndi og bátsformaður við Landeyjasand, f. 20. september 1805 á Hemlu í V-Landeyjum, d. 10. júní 1862 á Kálfsstöðum þar, og kona hans Þuríður Ólafsdóttir húsfreyja, fædd í Efra-Fíflholti í V-Landeyjum, skírð 16. mars 1801, d. 7. nóvember 1888 í Vestritungu þar.
Árni var með foreldrum sínum í Syðri Vatnahjáleigu 1835, í Fagurhól í A-Landeyjum 1845.
Hann fluttist til Eyja 1846 og var vinnupiltur í Sorgenfri/Fredensbolig hjá Jóni Jónssyni Austmann og Rósu Hjartardóttur.
Árni hrapaði til bana úr Klifinu 1848.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.