„Þórdís Pálsdóttir (Kastala)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Þórdís Pálsdóttir''' húsfreyja í Kastala fæddist 18. júlí 1777 á Hofi á Kjalarnesi og lést 11. október 1863.<br> Foreldrar hennar voru Páll Bjarnason bó...) |
m (Verndaði „Þórdís Pálsdóttir (Kastala)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. mars 2015 kl. 14:47
Þórdís Pálsdóttir húsfreyja í Kastala fæddist 18. júlí 1777 á Hofi á Kjalarnesi og lést 11. október 1863.
Foreldrar hennar voru Páll Bjarnason bóndi í Ártúni á Kjalarnesi, f. 1735, d. 2. mars 1801, og kona hans Metta Katrín Filippusdóttir, f. 1741.
Þórdís var húsfreyja í Reykjavík 1801.
Þau Einar voru komin til Eyja 1812 og voru þá húsmannshjón i Stakkagerði með Magdalenu 15 ára hjá sér, tómthúshjón í Kastala 1815-1820. Þar var Ingibjörg Þorláksdóttir móðir Einars hjá þeim 1815.
Þau fluttust að Grímsstöðum í Landeyjum 1820, bjuggu síðan í Vestra-Fróðholti í V-Landeyjum.
Hjónin fluttust síðar til Magdalenu dóttur sinnar og voru hjá henni á Grímsstöðum í Landeyjum.
Þórdís var að síðustu niðursetningur á Vestri-Klasbarða þar.
Hún lést 1863.
Maður Þórdísar var Einar Þorsteinsson tómthúsmaður í Kastala, f. 1769, d. 1. ágúst 1837.
Barn þeirra hér:
1. Magdalena Einarsdóttir húsfreyja á Ytri-Hól í V-Landeyjum og víðar, f. 1798, d. 20. október 1860.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landmannabók – Landsveit. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson og fleiri. Rangárþing ytra, Hellu 2003.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.