„Guðlaug Þorsteinsdóttir (Kirkjubæ)“: Munur á milli breytinga
Fara í flakk
Fara í leit
(Ný síða: '''Guðlaug Þorsteinsdóttir''' húskona á Kirkjubæ fæddist 1772 í Selshjáleigu í A-Landeyjum og lést 19. maí 1828.<br> Foreldrar hennar voru Þorsteinn Snorra...) |
m (Verndaði „Guðlaug Þorsteinsdóttir (Kirkjubæ)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 1. febrúar 2015 kl. 11:09
Guðlaug Þorsteinsdóttir húskona á Kirkjubæ fæddist 1772 í Selshjáleigu í A-Landeyjum og lést 19. maí 1828.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Snorrason bóndi í Selshjáleigu, f. 1748, var á lífi 1777, og kona hans Anna Marteinsdóttir frá Stóru-Hildisey, húsfreyja, f. 1743, d. 28. maí 1807.
Guðlaug var vinnukona á Miðeyjarhólmi í A-Landeyjum 1801, vinnukona í Selshjáleigu þar 1816.
Hún var bústýra Jóns Þorsteinssonar húsmanns á Kirkjubæ við giftingu þeirra 1824, húsfreyja á Löndum um við andlát 1828 úr landfarsótt.
Maður Guðlaugar, (4. júlí 1824), var Jón Þorsteinsson tómthúsmaður á Kirkjubæ, þá 45 ára en hún sögð 38 ára.
Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Prestþjónustubækur.