„Elín Þorkelsdóttir (Kokkhúsi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Elín Þorkelsdóttir''' frá Kokkhúsi fæddist 1841 og lést 18. mars 1883.<br> Foreldrar hennar voru Þorkell Brandsson tómthúsmaður í...)
 
m (Verndaði „Elín Þorkelsdóttir (Kokkhúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 23. nóvember 2014 kl. 20:04

Elín Þorkelsdóttir frá Kokkhúsi fæddist 1841 og lést 18. mars 1883.
Foreldrar hennar voru Þorkell Brandsson tómthúsmaður í Kokkhúsi, f. 1815, og kona hans, Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 7. mars 1814, d. 10. júní 1866.

Elín var heyrnar- og mállaus. Hennar er ekki getið við skírn.
Hún var með foreldrum sínum 1941, á fyrsta ári, og til 1862. Þá yfirgaf faðir hennar fjölskylduna, „óvíst hvert“.
Frá þeirri stundu var Elín niðursetningur í Eyjum.
Hún var niðursetningur á Búastöðum 1866, á Vilborgarstöðum 1870, á Oddsstöðum 1874 og enn við andlát 1883.
Hún var ógift og barnlaus.


Heimildir